Tollkvóti fyrir kartöflunasl frá Noregi
Með vísan til reglugerðar nr. 97/2014, sem birt var í B-deild Stjórnartíðinda þann 31. janúar 2014, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir kartöflunasl í tollskrárnúmeri 2005.2003, sem upprunnið er í Noregi og er innflutt þaðan, sbr. bókun 4 við EES-samninginn:
Tollskrár- númer: |
Vara | Tímabil | Vörumagn kg | Verð-tollur % | Magntollur kr./kg |
2005.2003 | Kartöflur: Nasl svo sem skífur, skrúfur, hringir, keilur, stangir o.þ.h., þó ekki úr kartöflumjöli | 24.02.14-31.12.14 | 15.000 | 0 | 0 |
Berist umsóknir um meiri innflutning en nemur auglýstum tollkvóta verður úthlutun miðuð við hlutfall innflutnings hvers umsækjanda miðað við heildarinnflutning allra umsækjenda á kartöflunasli í tollskrárnúmeri 2005.2003 á tímabilinu 1. janúar 2013 til 31. desember 2013. Úthlutun er ekki framseljanleg.
Skriflegar umsóknir skulu berast til fjármála- og efnahagsrráðuneytisins, tekju- og skattaskrifstofu, Arnarhvoli, 150 Reykjavík, fyrir kl. 15:00 mánudaginn 24. febrúar n.k.
Eingöngu er auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir kartöflunasl á heimasíðu fjármála- og efnahagsráðuneytis.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 4. febrúar 2014.