Áfrýjunarfjárhæð vegna einkamála breytt
Innanríkisráðuneytið hefur auglýst hækkun á áfrýjunarfjárhæð vegna einkamála úr 776.097 kr. í 790.214 kr. Breytingin tekur gildi 1. janúar 2016. Auglýsingin fer hér á eftir:
AUGLÝSING
um breytingu á áfrýjunarfjárhæð.
Áfrýjunarfjárhæð samkvæmt 1. mgr. 152. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91 31. desember 1991, sbr. 6. gr. laga nr. 38 19. apríl 1994, er kr. 790.214. Áfrýjunarfjárhæð þessi tekur gildi 1. janúar 2016 og gildir fyrir árið 2016.
Innanríkisráðuneytinu, 14. desember 2015.