Hoppa yfir valmynd
15. febrúar 2019 Heilbrigðisráðuneytið

Framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra laus til umsóknar

Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra auglýsir eftir umsóknum um framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra fyrir árið 2019. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að uppbyggingu og efla öldrunarþjónustu um allt land.

Framkvæmdasjóður aldraðra starfar samkvæmt lögum um málefni aldraðra nr. 125/1999 og reglugerð nr. 468/2014. Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra fer með stjórn sjóðsins og gerir tillögur til heilbrigðisráðherra um úthlutun úr honum. Vísað er til reglugerðarinnar varðandi upplýsingar um þau verkefni sem heimilt er að veita framlög til, afgreiðslu umsókna og reglur varðandi framlög.

Vakin er athygli á að umsækjendum er gert að sækja um rafrænt og er umsóknarformið, ásamt nánari upplýsingum, aðgengilegt á vef ráðuneytisins.

Umsóknum ber að skila í síðasta lagi fyrir kl. 16:00 mánudaginn 11. mars 2019.

Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum