Styrkir til menningar-, íþrótta- og æskulýðsmála
Mennta- og menningarmálaráðuneyti auglýsir eftir styrkumsóknum frá félögum, samtökum eða einstaklingum vegna verkefna á árinu 2021 sem ekki njóta lögbundins stuðnings eða falla undir sjóði eða sérstaka samninga. Umsóknarfrestur er til kl. 24:00 mánudaginn 16. nóv 2020.
Markmið og áherslur styrkjanna
Veittir eru styrkir til annarra en ríkisaðila þ.e. félaga, samtaka eða einstaklinga vegna verkefna á árinu 2021 sem ekki njóta lögbundins stuðnings eða falla undir sjóði eða sérstaka samninga. Heildarframlag til úthlutunar eru 37 milljónir kr. fyrir árið 2021. Hægt er að sækja um styrki vegna:
Menningarmála og menningararfs
Veittir eru rekstrar- og verkefnastyrkir til félaga, samtaka og einstaklinga, sem starfa að menningarmálum og/eða að verndun menningarminja, sem ekki hafa aðgang að uppbyggingarsjóðum landshluta eða öðrum sjóðum lista og menningararfs.
Mannvirkja á sviði íþrótta- og æskulýðsmála
Veittir eru stofnstyrkir til að styðja við uppbyggingu, endurnýjun og viðhald íþróttamannvirkja og mannvirkja fyrir æskulýðsstarfsemi í samstarfi við sveitarfélög og fleiri aðila.
Athugið að þessir styrkir eru ekki veittir vegna mennta- eða vísindamála, eða annarra verkefna sem falla undir önnur málefnasvið ráðuneytisins.
Um mat á umsóknum
Starfshópur metur styrkhæfi umsókna og gildi þeirra fyrir viðkomandi málefnasvið.
Mat á umsóknum skal einkum byggjast á eftirtöldum sjónarmiðum eftir því sem við á:
a) gildi og mikilvægi verkefnis fyrir stefnu viðkomandi málaflokks,
b) gildi og mikilvægi fyrir kynningu og markaðssetningu viðkomandi málaflokks,
c) að umsækjanda takist að ná þeim markmiðum sem verkefnið miðar að,
d) starfsferli og faglegum bakgrunni umsækjanda og annarra þátttakenda,
e) fjárhagsgrundvelli verkefnis og/eða hvort umsækjandi hafi hlotið aðra styrki til sama verkefnis.
Upplýsingar um gögn sem skulu fylgja umsókn er að finna í umsóknareyðublöðum. Hafi umsækjandi áður fengið styrk til verkefnis þarf að liggja fyrir greinargerð um framkvæmd þess og ráðstöfun styrkfjárins til að ný umsókn komi til greina eða eins og kveðið er á um í skilmálum vegna fyrri styrkveitinga. Við mat á umsóknum er starfshópnum heimilt að leita umsagnar fagaðila, gerist þess þörf. Umsóknir sem ekki uppfylla skilyrði auglýsingar og úthlutunarskilmála verða ekki teknar til greina.Ákvörðun um úthlutun mun liggja fyrir eigi síðar en 31. janúar 2021.
Auglýsing þessi byggir á 40. og 42. gr. laga um opinber fjármál nr. 123/2018 og reglugerðum nr. 642/2018 um styrkveitingar ráðherra og 643/2018 um undirbúning, gerð og eftirfylgni samninga um framkvæmdir, rekstur og afmörkuð verkefni ásamt reglum nr. 208/2018 um úthlutun styrkja af safnliðum mennta- og menningarmálaráðuneytis.
Umsóknum skal skilað á rafrænu formi gegnum umsóknavef Stjórnarráðsins
· Aðgangur er veittur á kennitölu umsækjanda og verður lykilorð sent viðkomandi í tölvupósti. Lykilorðinu má breyta eftir innskráningu.
· Umsækjendur skrá sig inn með kennitölu og lykilorði og velja mennta- og menningarmálaráðuneyti á síðunni Eyðublöð.
· Heiti eyðublaðs: Menningarstyrkir 2021
Nánari upplýsingar veitir Ásta Ingólfsdóttir í síma 545 9520 eða í tölvupósti á [email protected]