Styrkir til menningarsamstarfs milli Noregs og Íslands
Norsk stjórnvöld leggja árlega til framlag til norsks-íslensks menningarsamstarfs. Markmið framlagsins er að stuðla að fjölbreyttu menningarsamstarfi milli Noregs og Íslands.
Umsækjendur verða að fylla út umsóknareyðublað á vef norska menningarráðsins, Norsk kulturråd.
Æskilegt er að umsóknir séu skrifaðar á norsku, dönsku, sænsku eða ensku.
Umsóknarfrestur um styrki rennur út þann 2. desember nk.
Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu norska menningarráðsins.