Styrkir vegna þátttöku framhaldsskólanema í alþjóðlegum nemakeppnum í stærðfræði og raunvísindum
Markmið styrkjanna er að fjölga nemendum í raunvísindum og stærðfræði. Heildarfjárhæð styrkja á árinu 2021 er allt að 7,5 m.kr. og eru styrkirnir veittir til að standa straum af ferðakostnaði vegna þátttöku í keppnunum. Að auki mun ráðuneytið veita styrki sérstaklega til keppenda með heildarfjárveitingu að upphæð 3,8 m. kr.
Skilyrði fyrir styrkveitingu er að það borist hafi greinargerð vegna fyrri styrks. Ekki eru veittir styrkir til verkefna sem hljóta styrki á fjárlögum eða falla undir aðra sjóði ráðuneytisins eða samninga sem gerðir hafa verið við ráðuneytið.
Smelltu hér til að ná í umsóknareyðublað.
Umsóknir berist á netfangið [email protected] í síðasta lagi föstudaginn 9. apríl 2021.
Nánari upplýsingar veitir Ásta María Reynisdóttir, [email protected]rn.is og í síma 545-9500.
Umsóknarfrestur er til föstudagins 9. apríl 2021.