Tilnefning í Æskulýðsráð
Tilnefna skal konu og karl til setu í Æskulýðsráði til tveggja ára. Í tilnefningunni skal koma fram vilji tilnefndra einstaklinga til að taka að sér setu í Æskulýðsráði. Með tilnefningu skal fylgja yfirlit yfir reynslu og þekkingu tilnefndra á starfi æskulýðsfélaga eða æskulýðssamtaka og yfirlýsing um að viðkomandi uppfylli ákvæði 10. gr. æskulýðslaga nr. 70/2007.
Tilnefningar þurfa að berast ráðuneytinu í síðasta lagi 14. júní 2021, gegnum netfangið [email protected].