Staða íslensks dómara við Mannréttindadómstól Evrópu
Kjörtímabil íslensks dómara við Mannréttindadómstól Evrópu rennur út hinn 31. október 2022. Evrópuráðið hefur því farið þess á leit að tilnefnd verði af Íslands hálfu þrjú dómaraefni en skv. 22. gr. mannréttindasáttmálans, sbr. lög nr. 62/1994, eru dómarar við Mannréttindadómstólinn kjörnir af þingi Evrópuráðsins af lista með þremur mönnum sem samningsaðili tilnefnir.
Mannréttindadómstóll Evrópu í Strassborg fjallar um mál sem til hans er vísað af einstaklingum og samningsaðilum vegna meintra brota á ákvæðum mannréttindasáttmála Evrópu eða samningsviðaukum við hann. Dómstóllinn er skipaður einum dómara frá hverju samningsríkja.
Um hæfisskilyrði dómara við Mannréttindadómstólinn er fjallað í 21. gr. mannréttindasáttmálans og kemur þar fram að dómarar skuli vera grandvarir og verði annaðhvort að fullnægja kröfum um hæfi til að gegna æðri dómarastörfum eða vera lögvísir svo orð fari af. Þeir skuli skipa sæti sitt sem einstaklingar og meðan kjörtímabil þeirra varir skuli þeir ekki taka þátt í neinni starfsemi sem sé ósamrýmanleg sjálfstæði þeirra, hlutleysi eða kröfum sem gerðar eru til fulls dómarastarfs. Samkvæmt 2. mgr. 21. gr. skulu umsækjendur vera yngri en 65 ára daginn sem þingið biður um lista með þremur mönnum, sjá nánar í 22. gr. Sú dagsetning er 25. ágúst 2022. Um kosningu dómara segir í 22. gr að dómararnir skulu kjörnir af þinginu af hálfu sérhvers samningsaðila, með meiri hluta greiddra atkvæða af lista með þremur mönnum sem samningsaðili tilnefnir.
Hinn 28. mars 2012 samþykkti ráðherranefnd Evrópuráðsins leiðbeinandi reglur, nr. 40 (2012), um val á dómaraefnum sem koma til greina í embætti dómara við Mannréttindadómstól Evrópu. Í þeim reglum má m.a. finna leiðbeiningar við mat á þeim skilyrðum sem ráðherranefndin telur dómara við dómstólinn þurfa að uppfylla. Sérstök athygli er vakin á greinargerð um leiðbeinandi reglur um val á dómaraefnum en æskilegt er að umsækjendur kynni sér þær vel. Sjá tengla neðst í auglýsingunni. Þar er einnig að finna upplýsingar varðandi starfskjör og stöðu dómara við mannréttindadómstólinn, auk annarra viðeigandi gagna og upplýsinga varðandi val á dómara og dómaraefnum.
Sérstök athygli er vakin á því að dómstóllinn gerir þá kröfu að dómari hafi gott vald bæði skriflega og munnlega á öðru tveggja opinberra tungumála réttarins, þ. e. ensku og frönsku, og nokkurn skilning á hinu. Dómstóllinn leggur áherslu á að á listanum séu ekki aðeins dómaraefni af einu kyni.
Hér með gefst þeim sem áhuga hafa á að vera tilnefnd af Íslands hálfu sem dómaraefni við mannréttindadómstólinn kostur á að senda forsætisráðuneytinu umsókn sína eigi síðar en 8. ágúst 2022. Umsóknir og fylgigögn óskast send til forsætisráðuneytisins, Stjórnarráðshúsinu við Lækjartorg, 101 Reykjavík og á netfangið [email protected].
Er þess óskað að umsóknir berist á íslensku, ensku og jafnframt á frönsku ef unnt er á sérstökum umsóknareyðublöðum Evrópuráðsins á WORD formi (sjá tengil).
Til þess að hraða afgreiðslu umsókna og bréfaskiptum er áskilið að umsækjendur gefi upp netfang sem notað verður til að eiga samskipti við umsækjendur. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um tilnefningu liggur fyrir.
Fimm manna hæfisnefnd mun meta umsóknir sem berast. Mun hæfisnefndin skila umsögn um umsækjendur og gera rökstudda tillögu um hver þeirra teljist hæfust til að vera tilnefnd. Tilnefningar stjórnvalda verða byggðar á þessari tillögu.
Frekari upplýsingar er unnt að nálgast hjá skrifstofu jafnréttis- og mannréttindamála í forsætisráðuneytinu í síma 545 8400 eða í netfang: [email protected]
Forsætisráðuneytinu,
22. júní 2022
- Vefur Mannréttindadómstólsins
- Umsóknareyðublað
- Ýmsar upplýsingar
- Frétt um setningu leiðbeinandi reglna
- Leiðbeinandi reglur um val á dómaraefnum
- Greinargerð um leiðbeinandi reglur
- Staða og starfskjör
- Um Ráðgjafanefnd um val á dómaraefnum
- Val og kosning dómara við Mannréttindadómstól Evrópu