Hoppa yfir valmynd
20. mars 1998 Forsætisráðuneytið

Aukið norrænt samstarf um upplýsingatækni

Fréttatilkynning - Norðurlandaskrifstofa forsætisráðuneytis

Ráðherrar Norðurlanda á sviði upplýsingatækni tóku á samráðsfundi í Haga-höllinni í Stokkhólmi í dag, 20. mars, ákvörðun um að stofnað skuli til formlegs norræns samstarfs um upplýsingatækni. Myndað verði norrænt tengslanet milli þeirra ráðuneyta, sem bera ábyrgð á samræmingu á sviði upplýsingamiðlunar.

Eins og norrænt samstarf á öðrum sviðum mun samstarfið um upplýsingatækni grundvallast á samstarfi á Norðurlöndum, innan Evrópu og á grannsvæðum Norðurlanda. Megin markmið samstarfsins eru:

  • að efla lýðræði
  • að tryggja öllum aðgengi að upplýsingasamfélaginu
  • að efla norræn tungumál og norræna menningu
  • að ryðja brautina fyrir rafræn viðskipti
  • að örva uppbyggingu tengsla meðal lítilla og meðalstórra fyrirtækja



Nú þegar er fyrir hendi þróað norrænt samstarf um upplýsingatækni á afmörkuðum sviðum. Ráðherrarnir leggja engu að síður áherslu á þörfina fyrir að efla samstarfið á þessu sviði, enda séu fyrir hendi möguleikar á að vinna hnitmiðað að málum sem ná til fleiri fagsviða.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum