Hoppa yfir valmynd
18. október 1999 Innviðaráðuneytið

Nýsköpun í gagna- og fjarvinnslu á landsbyggðinni


18. október 1999


Fréttatilkynning varðandi skýrslu um fjarvinnslu á landsbyggðinni




Nýsköpun í gagna- og fjarvinnslu á landsbyggðinni
Iðntæknistofnun hefur unnið skýrslu um notkun upplýsingatækni við fjarvinnslu og gagnavinnslu á landsbyggðinni, og nefnist hún Nýsköpun í gagna- og fjarvinnslu á landsbyggðinni. Skýrslan er unnin fyrir Byggðastofnun og forsætisráðuneytið auk Iðntæknistofnunar og er henni ætlað að kortleggja þau tækifæri, sem nýst geta til atvinnuuppbyggingar á landsbyggðinni.

Í skýrslunni er verkefnahugmyndum skipt eftir stofnkostnaði og því hve mikillar sérhæfni þau krefjast. Kynntar eru samtals 211 hugmyndir, sem skiptast þannig:
Þjónustu-/aðlögunarverkefni án verulegs kostnaðarauka, 28 verkefnahugmyndir. Þar má nefna símsvörun og úthringiþjónustu. Yfirfærsluverkefni án verulegs kostnaðarauka, 18 verkefnahugmyndir. Þar má nefna viðhald heimasíðna og hvers kyns þýðingarvinnu. Verkefni á sviði þjónustu sem krefjast nokkurs fjármagns, 22 verkefnahugmyndir. Þar má nefna rekstur og viðhald gagnagrunna og upplýsingaveitna. Yfirfærsluverkefni sem krefjast nokkurs fjármagns, 46 verkefnahugmyndir. Þar má nefna fjarkennslu og skráningarvinnu. Þróunarverkefni sem krefjast nokkurs fjármagns, 35 verkefnahugmyndir. Þar má nefna skráningu gagna á heilbrigðissviði og gerð gagnvirks upplýsingakerfis svo sem við íbúðarkaup. Yfirfærsluverkefni á sérfræðistigi, 1 verkefnahugmynd, "Benchmarking" (bestu viðmið). Þróunarverkefni á sérfræðistigi, 61 verkefnahugmynd. Þar má nefna gerð sérhæfðra gagnagrunna, upplýsingaveitna og hugbúnaðar.

Skýrslan er jákvæð fyrir landsbyggðina, og sýnir að hinar öru framfarir, sem nú eiga sér stað á sviði upplýsinga- og fjarskiptatækni, opna ný tækifæri og gefa ýmsa möguleika á atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni. Ýmis fyrirtæki sjá sér nú þegar hag í að nýta þessa möguleika, m.a. hefur fyrirtækið Íslensk miðlun sett upp starfsstöðvar á Raufarhöfn, Stöðvarfirði, Þingeyri og Suðureyri, og fleiri eru áformaðar. Fjarlægðir og erfiðar samgöngur standa því ekki lengur í vegi fyrir að hægt sé að byggja upp fjölbreytt atvinnulíf með nýjustu tækni á landsbyggðinni. Skýrslan fjallar þó eingöngu um þá möguleika, sem fyrir hendi eru, ásamt tillögum um næstu skref.

Til þess að koma frekari hreyfingu á þessi mál er lagt til að:
§ Í samræmi við 6. lið þingsályktunar um stefnu í byggðamálum 1999-2001, sem fjallar um fjölgun opinberra starfa á landsbyggðinni, m.a. með notkun upplýsingatækni, verði gert sérstakt átak til að hvetja stofnanir til að nýta sér þennan möguleika.

§ Greindir verði möguleikar byggðarlaga á landsbyggðinni á að taka við verkefnum í áðurnefndum flokkum fjarvinnsluverkefna.

§ Beint verði til atvinnuþróunarfélaga og Iðntæknistofnunar að aðstoða einka- og opinber fyrirtæki við flutning verkefna til landsbyggðarinnar og hagkvæmniathuganir á þeim.

Lagt er til að þessi skýrsla fái ítarlega kynningu og verði dreift til sveitarfélaga, fyrirtækja, stofnana og ráðuneyta.

Skýrsluna má nálgast á heimasíðu Iðntæknistofnunar.


                              18. október 1999,
                              Forsætisráðuneyti, Byggðastofnun og Iðntæknistofnun

              Efnisorð

              Hafa samband

              Ábending / fyrirspurn
              Ruslvörn
              Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum