Hoppa yfir valmynd
3. apríl 2001 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Frumvarp til laga um atvinnuréttindi útlendinga

Félagsmálaráðherra hefur lagt fram á þingi frumvarp til laga um atvinnuréttindi útlendinga. Frumvarpið var samið af nefnd sem félagsmálaráðherra skipaði í lok árs 1999. Í nefndinni áttu sæti fulltrúar frá félagsmálaráðuneyti, Vinnumálastofnun, Samtökum atvinnulífsins, Alþýðusambandi Íslands og dómsmálaráðuneyti. Nefndinni var falið að endurskoða núgildandi lög um atvinnuréttindi útlendinga nr. 133/1994. Frumvarp þetta felur í sér heildarendurskoðun á lögunum.

Í frumvarpinu er að finna reglur um rétt útlendinga hér á landi til atvinnu að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Frumvarpinu er einnig ætlað að tryggja réttaröryggi útlendinga sem koma til landsins í atvinnuskyni.

Frá gildistöku núgildandi laga hafa orðið miklar breytingar á íslenskum vinnumarkaði. Eftirspurn eftir erlendu vinnuafli hefur stóaukist sem rekja má til mikillar þenslu á vinnumarkaði síðustu ár. Þá hefur orðið sú breyting að þeir útlendingar sem hingað koma til vinnu dvelja hér lengur en áður var og reynir því oftar á rétt fjölskyldu þeirra til dvalar og atvinnu í landinu.

Í störfum nefndarinnar hefur sérstaklega verið litið til framkvæmdar núgildandi laga m.a. með tilkomu Vinnumálastofnunar og svæðisvinnumiðlana þar sem félagsmálaráðherra hefur falið Vinnumálastofnun að hafa með höndum veitingu atvinnuleyfa. Með frumvarpinu er m.a. verið að festa þessa framkvæmd í sessi.

Vegna þeirra breytinga sem orðið hafa féllu núgildandi lög í mörgu tilliti illa að aðstæðum í íslensku samfélagi. Í frumvarpinu hefur einnig verið tekið tillit til þeirrar almennu þróunar sem orðið hefur á löggjöf á sviði stjórnsýsluréttar, mannréttinda og í alþjóðlegu samstarfi.

Endurskoðun laga um atvinnuréttindi útlendinga hefur tekið nokkuð mið af frumvarpi til laga um útlendinga sem liggur fyrir Alþingi. Það á m.a. við um hugtakanotkun. Leitast hefur verið við að hafa samræmi á þessu sviði eins og unnt er. Dvalarleyfi og atvinnuleyfi eru nátengd, þannig að nauðsynlegt var að taka tillit til framangreinds frumvarps. Þá er í frumvarpinu kveðið á um samstarf Vinnumálastofnunar og Útlendingastofnunar. Eins er að finna ákvæði um útgáfu skírteinis vegna dvalar og atvinnuleyfis sem Útlendingastofnun skuli annast útgáfu á enda er það til samræmis við núgildandi vinnulag þar sem slík útgáfa er í höndum Útlendingaeftirlits samkvæmt samkomulagi.

Ákvæði um brottvísun í núgildandi lögum um atvinnuréttindi útlendinga er fellt út enda er um brottvísun fjallað í 20. gr. frumvarps til laga um útlendinga, en forsenda dvalarleyfis vegna atvinnu er m.a. vissan um að atvinnuleyfi fáist.

I. Helstu nýmæli frumvarpsins

Kaflaskipan frumvarpsins er með nokkuð öðrum hætti en í núgildandi lögum. Frumvarpið skiptist í eftirfarandi kafla:

I. Almenn ákvæði.
II. Atvinnuleyfi.
III. Undanþáguákvæði.
IV. Afturköllun atvinnuleyfa og viðurlög.
V. Samráð Vinnumálastofnunar og Útlendingastofnunar.
VI. Málsmeðferð.
VII. Ýmis ákvæði og gildistaka.

Helstu nýmæli frumvarpsins eru eftirfarandi:

1. Atvinnuleyfi til sérhæfðra starfsmanna.

2. Heimilt er að víkja frá skilyrði um umsögn stéttarfélags þegar ekki er til að dreifa stéttarfélagi eða landssambandi í hlutaðeigandi starfsgrein.

3. Atvinnurekandi skal samkvæmt frumvarpinu sjúkratryggja erlendan starfsmann sinn þar til hann nýtur verndar samkvæmt ákvæðum almannatryggingalaga.

4. Atvinnurekandi skal undir sérstökum kringumstæðum ábyrgjast greiðslu vegna heimflutnings starfsmanns.

5. Framkvæmd vegna útgáfu heilbrigðisvottorða verði breytt þannig að tekin verða gild erlend vottorð ef þau eru fullnægjandi samkvæmt reglugerð á grundvelli laganna og sóttvarnalaga nr. 19/1997.

6. Í frumvarpinu er heimildarákvæði um að veita nánustu aðstandendum útlendings tímabundið atvinnuleyfi, enda hafi hann fengið búsetuleyfi og óbundið atvinnuleyfi.

7. Með frumvarpinu er ef ríkar sanngirnisástæður eru fyrir hendi heimilt að víkja frá þeirri meginreglu að tímabundið atvinnuleyfi skuli ætíð liggja fyrir áður en útlendingur kemur í fyrsta sinn til starfa hér á landi.

8. Í frumvarpinu er sérstakt ákvæði um íslenskukennslu og samfélagsfræðslu.

9. Í frumvarpinu er heimild til að víkja frá skilyrðum varðandi óbundið atvinnuleyfi þegar um er að ræða skilnað útlendings sem hefur verið giftur Íslendingi í a.m.k. tvö ár, enda hafi viðkomandi átt samfellt lögheimili á landinu í a.m.k. tvö ár.

10. Í frumvarpinu er heimilt að víkja frá skilyrðum varðandi óbundið atvinnuleyfi þegar um er að ræða andlát íslensks maka útlendings.

11. Frumvarpið kveður einnig á um að víkja megi frá því skilyrði við veitingu óbundins atvinnuleyfis að þegar liggi fyrir tímabundið atvinnuleyfi, ef um er að ræða útlending sem verið hefur í námi hér á landi að lágmarki í þrjú ár og lokið námi.

12. Í frumvarpinu eru skilyrði afturköllunar atvinnuleyfis tilgreind.

13. Í frumvarpinu er kveðið á um samráðsnefnd Vinnumálastofnunar og Útlendingastofnunar.

14. Í frumvarpinu er nýr kafli um málsmeðferð þar sem koma fram helstu meginreglur um málsmeðferðina og kæruheimild.

15. Lagt er til að skipuð verði samstarfsnefnd sem taki á almennum álitamálum varðandi útgáfu atvinnuleyfa og fjalli um beiðnir sem berast til Vinnumálastofnunar vegna atvinnuleyfa fyrir hópa.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum