Hoppa yfir valmynd
23. maí 2001 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Greiðsluafkoma ríkissjóðs fyrstu fjóra mánuði ársins 2001. Greinargerð 23. maí 2001

Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar-apríl 2001 (PDF 170K)


Nú liggja fyrir tölur um afkomu ríkissjóðs eftir fyrsta ársþriðjung. Uppgjörið hér á eftir sýnir sjóðshreyfingar og er sambærilegt við almenn sjóðsstreymisyfirlit. Tölurnar eru því ekki sambærilegar við ríkisreikning eða fjárlög ársins sem eru sett fram á rekstrargrunni.

Heildaryfirlit
Fyrstu fjóra mánuði ársins var handbært fé frá rekstri neikvætt um rúmar 200 m.kr., samanborið við 8,6 milljarða jákvæða stöðu í fyrra. Þessi niðurstaða er 2,4 milljörðum króna lakari en gert var ráð fyrir í áætlunum. Tekjur eru því sem næst í samræmi við áætlanir, en gjöldin eru umfram áætlanir og þar vegur þyngst 1,3 milljarða króna greiðslur vegna hæstaréttardóms um málefni öryrkja.

Tekjur hækka um 4,3 milljarða frá fyrra ári sem einkum má rekja til skatta á tekjur og hagnað. Gjöldin hækka hins vegar mun meira, eða um 13,1 milljarð króna. Um helmingur þessarar hækkunar stafa af sérstökum tilefnum sem ástæða er til að nefna. Þannig nemur hækkun vaxtagreiðslna um 2,6 milljörðum; sérstakar greiðslur til öryrkja nema 1,3 milljörðum króna; 1,1 milljarður skýrist af bættri greiðslustöðu Tryggingastofnunar ríkisins vegna sjúkratrygginga; uppkaup á fullvirðisrétti bænda nema 0,8 milljörðum og sérstök hækkun framlaga til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 0,9 milljörðum.


Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar-apríl 2001
(Í milljónum króna)

    Hreinn lánsfjárjöfnuður var neikvæður um 1,9 milljarða króna sem er um 3 milljörðum lakari útkoma en áætlað var og 13S milljarði króna lakara en í fyrra. Skýringin á lakari útkomu en í fyrra er, auk þess sem áður er nefnt, að þá komu til greiðslu 5,5 milljarðar króna vegna sölu á hlutabréfum í ríkisbönkunum á árinu 1999.
    Á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs voru auk þess greiddir 5 milljarðar króna í Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins til að grynnka á framtíðarskuldbindingum ríkissjóðs, en samkvæmt fjárlögum 2001 er áformað að greiða 15 milljarða í LSR.
    Greiðsluafkoma ríkissjóðs á fyrstu fjórum mánuðum ársins 2001 reyndist jákvæð um rúmlega einn milljarð króna, samanborið við 5 milljarða á sama tímabili árið áður.

    Tekjur
    Heildartekjur ríkissjóðs námu rúmum 72,3 milljörðum króna á fyrstu fjórum mánuðum ársins, tæpum 150 m.kr. umfram áætlun. Þetta samsvarar um 6,2% aukningu milli ára. Skatttekjur hækka heldur minna, eða um 5,7%, sem er aðeins helmingur þess sem var á sama tíma í fyrra og rétt rúmlega fjórðungur hækkunarinnar á sama tíma árið áður.

    Tekjur ríkissjóðs janúar-apríl 2001
    (Í milljónum króna)


    Skattar á tekjur og hagnað aukast þó enn töluvert á milli ára, eða um 17%, en það stafar einkum af mikilli aukningu í innheimtu á tekjuskatti lögaðila og fjármagnstekjuskatti. Innheimta á tekjuskatti einstaklinga eykst mun minna, eða um tæp 12%.

    Mikið hefur hægt á veltunni í efnahagslífinu undanfarin misseri og á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs lækkuðu veltuskattar um 2,5% frá sama tíma í fyrra. Í þessu sambandi er vert að benda á að verðlag hefur á sama tímabili hækkað um tæplega 4% og endurspeglar þessi þróun því nokkurn samdrátt að raungildi. Þessa þróun má meðal annars rekja til verulegs samdráttar í vörugjöldum af ökutækjum en innflutningur af ökutækjum hefur dregist saman um rúm 30% milli ára. Vörugjöld af bensíni eru tæplega 280 m.kr. undir áætlun, en hér verður að hafa í huga að sveiflur í innflutningi á bensíni geta verið verulegar á milli mánaða og því má vænta þess að tekjur aukist þegar líður á árið.

    Heildartekjur ríkissjóðs af virðisaukaskatti hafa dregist saman um 2,4% á milli ára. Minni tekjur af virðisaukaskatti má að verulegu leyti rekja til breyttrar samsetningar innflutnings þar sem vægi fjárfestingar- og rekstrarvara hefur stóraukist á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs frá sama tíma í fyrra. Virðisaukaskattstekjur af innflutningi jukust því um 9,4% frá sama tíma í fyrra. Slík breyting leiðir til þess að innheimtuhlutfall virðisaukaskattsins lækkar tímabundið þar sem sá skattur sem innheimtist við innflutning myndar jafnframt innskatt sem dregst frá útskatti við næstu skil. Það getur því valdið tímabundum sveiflum í innheimtu líkt og nú og reyndar á árunum 1997-1999.

    Gjöld
    Heildargreiðslur ríkissjóðs námu um 72S milljarði króna á fyrsta ársþriðjungi ársins og er það 2S milljarði króna umfram áætlun fjárlaga. Af einstökum liðum má nefna að umframgreiðslur lífeyristrygginga nema 1,3 milljörðum í kjölfar hæstaréttardóms um örorkubætur. Gjöldin hækka um 13,1 milljarð frá fyrra ári sem einkum skýrist af fjórum tilfærsluliðum, sbr. umfjöllun hér að framan, svo og af 2,6 milljarða hærri vaxtagreiðslum. Þar sem tímabilið til umfjöllunar er aðeins fjórir mánuðir má gera ráð fyrir því að frávik á einstökum liðum skýrist af tilfærslu milli mánaða.

    Almenn mál. Útgjöld til almennra mála, en þar undir fellur æðsta stjórn ríkisins, standa í heild nánast í stað milli ára. Launa- og verðlagshækkun milli ára vegur upp á móti lægri greiðslum vegna umsýslu fasteigna og þess að á síðasta ári voru útgjöld verkefna tengd árþúsundaskiptunum um 150 m.kr. Hækkun gjalda löggæslu og öryggismála um tæpar 300 m.kr. skýrist að mestu af framkvæmdum við snjóflóðavarnir.

    Félagsmál. Meira en helmingur af útgreiðslum á tímabilinu runnu til ýmissa félagsmála, svo sem fræðslu- menningar-, heilbrigðis- og tryggingamála. Útgjöld til þessa málaflokks hækka í heild um 6,9 milljarða króna milli ára. Hækkun vegna fræðslumála, rúmar 800 m.kr. kemur að hálfu fram í greiðslum til framhalds- og sérskóla, sem m.a. skýrist af viðbótaryfirvinnu eftir lok verkfalls framhaldsskólakennara. Þá eru einnig nokkrar tilfærslur milli mánaða. Þær koma fram sem hækkun greiðslna til Háskóla Íslands, 140 m.kr. og Lánasjóðs íslenskra námsmanna, 100 m.kr. Framlög til heilbrigðismála hækka um 2,4 milljarða króna, en þarf af skýrast um 900 m.kr. af bættri greiðslustöðu Tryggingarstofnunar ríkisins en hún ofmetur hækkun hjá sjúkratryggingum milli ára. Þá hækka rekstrarframlög til sjúkra- og öldrunarstofnana um rúman milljarð króna milli ára. Greiðslur almannatrygginga hækka um 3,2 milljarða eða 30%. Þar munar mestu um 1.300 m.kr. greiðslu vegna dóms Hæstaréttar í málefnum öryrkja, sem er afturvirk hækkun, 4 ár aftur í tímann. Auk þess hækka greiðslur til ellilífeyrisþega í samræmi við dóminn en taka þó aðeins til yfirstandandi árs. Greiðslur vegna bóta skv. lögum um félagslega aðstoð hækka um 800 m.kr. milli ára og er þar að mestu um tilfærslu milli mánaða að ræða. Hins vegar hækka greiðslur til Atvinnuleysistryggingasjóðs mun minna, eða um 50 m.kr., enda er atvinnuleysi nær óbreytt milli ára það sem af er árinu. Ný lög um fæðingarorlof hafa leitt til 260 m.kr. gjalda það sem af er árinu.


    Gjöld ríkissjóðs janúar -apríl
    (Í milljónum króna)


    Atvinnumál. Útgjöld til atvinnumála hækka samtals um rúma 2 milljarða króna, sem er 24% hækkun frá því í fyrra. Mestu munar um uppkaup ríkisins á fullvirðisrétti bænda, en 780 m.kr. eingreiðsla fór til þess verkefnis í janúar. Þá hækka greiðslur til samgöngumála um milljarð króna. Þar af eru 700 m.kr. hækkun til Vegagerðarinnar og tæplega 200 m.kr. til Siglingastofnunar. Framlög til Byggðastofnunar hækka um 300 m.kr. milli ára.

    Vaxtagreiðslur hækka um 37%, eða 2,6 milljarða króna. Þar af hækka greiðslur vegna spariskírteina um 1,8 milljarða sem skýrist af því að stór flokkur spariskírteina kom til innlausnar í febrúar. Þá hækka vaxtagreiðslur vegna erlendra skammtímalána um rúmar 200 m.kr. milli ára.

    Önnur útgjöld hækka um 1,2 milljarða króna milli ára og þar af skýrast 900 m.kr. af hærri greiðslum til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.

    Lánahreyfingar
    Greiðslur fjármunahreyfinga námu 1,7 milljörðum króna en á sama tíma í fyrra námu innborganir 3,3 milljörðum. Skýring á þessum mun kemur einkum fram í því að í janúar á síðasta ári voru innborganir vegna sölu á hlutabréfum í ríkisbönkunum 5,5 milljarðar króna.

    Afborganir lána ríkissjóðs námu 21,4 milljörðum króna og eru að stærstum hluta vegna erlendra lána. Í febrúar var á innlausn flokkur spariskírteina frá árinu 1990 og hafa bréf í þeim flokki verið innleyst fyrir um 8,8 milljarða króna en þar af voru afborganir 4,8 milljarðar. Auk þess hafa spariskírteini verið forinnleyst í uppkaupaútboðum úr tveimur spariskírteinaflokkum fyrir 3 milljarða króna að innlausnarvirði. Þar af nema afborganir 1,8 milljörðum. Uppkaup með þessum hætti beinast að þeim flokkum spariskírteina sem ekki eru nægilega seljanlegir á eftirmarkaði, eða stutt eftir að gjalddaga þeirra.

    Ákveðið hefur verið að ráðstafa hluta lánsfjárafgangs ríkissjóðs til greiðslu lífeyrisskuldbindinga hans hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins. Greiðslur til sjóðsins voru 5 milljarðar króna samanborið við 2 milljarða í fyrra.
      Lántökur ríkisins námu um 29,4 milljörðum króna. Þar af voru erlendar lántökur 20,7 milljarðar sem að stærstum hluta runnu til niðurgreiðslu erlendra skulda. Það sem af er árinu hefur stofn ríkisvíxla stækkað um 6 milljarða króna, auk þess sem seld hafa verið ríkisbréf í nýjum 6 ára flokki fyrir um 2,5 milljarða króna.

      Fjármálaráðuneytinu, 23. maí 2001


      Efnisorð

      Hafa samband

      Ábending / fyrirspurn
      Ruslvörn
      Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum