Hoppa yfir valmynd
22. ágúst 2001 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Greiðsluafkoma ríkissjóðs fyrstu sjö mánuði ársins 2001. Greinargerð 22. ágúst 2001

Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar-júlí 2001 (PDF 163K)

Nú liggja fyrir tölur um afkomu ríkissjóðs fyrstu sjö mánuði ársins. Uppgjörið hér á eftir sýnir sjóðshreyfingar og er sambærilegt við almenn sjóðsstreymisyfirlit. Tölurnar eru því ekki sambærilegar við ríkisreikning eða fjárlög ársins sem eru sett fram á rekstrargrunni.

Heildaryfirlit
Fyrstu sjö mánuði ársins var handbært fé frá rekstri neikvætt um 5,2 milljarða króna, samanborið við 7,5 milljarða jákvæða stöðu í fyrra. Þessi niðurstaða er tæplega 4,9 milljörðum króna lakari en gert var ráð fyrir í áætlunum. Tekjur eru lítillega yfir áætlun, eða um 600 m.kr. Gjöldin eru hins vegar 5,5 milljörðum umfram áætlun, sem að miklu leyti má rekja til sérstakra tilefna svo sem vaxtagreiðslna vegna forinnlausnar spariskírteina, nýrra kjarasamninga, hæstaréttardóms vegna málefna öryrkja o.fl.

Heildartekjur ríkissjóðs hækka um 8,7 milljarða króna frá sama tíma í fyrra, einkum vegna aukinnar innheimtu tekjuskatta. Útgjöld hækka hins vegar mun meira, eða um 21S milljarð króna. Tæplega helming útgjaldaukningarinnar má rekja til sérstakra tilefna. Þannig nemur hækkun vaxtagreiðslna um 2,5 milljörðum; sérstakar greiðslur til öryrkja nema 1,3 milljörðum króna; 1,6 milljarðar stafa af auknum greiðslum til Tryggingastofnunar ríkisins vegna sjúkra-trygginga og bóta vegna félagslegrar aðstoðar. Greiðslur til fæðingarorlofssjóðs voru 1,1 milljarður og hækkun framlaga til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga nam 1,6 milljörðum króna. Þá voru 0,8 milljarðar nýttir til uppkaupa á fullvirðisrétti bænda. Rétt er að vekja athygli á að hluti af þessari hækkun kemur ekki til gjalda á rekstrargrunni á þessu ári.


Á fyrstu sjö mánuðum þessa árs voru auk þess greiddir 8,7 milljarðar króna í Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins til að grynnka á framtíðarskuldbindingum ríkissjóðs, en samkvæmt fjárlögum 2001 er áformað að greiða 15 milljarða í LSR.

Greiðsluafkoma ríkissjóðs á fyrstu sjö mánuðum ársins 2001 reyndist neikvæð um 6,5 milljarða króna, sem er 4,8 milljörðum lakara en sama tímabili árið áður og rúmlega 1,3 milljörðum lakara en áætlað var.

Tekjur
Heildartekjur ríkissjóðs námu tæplega 123 milljörðum króna á fyrstu sjö mánuðum ársins, eða 600 m.kr. umfram áætlun. Hækkunin milli ára nemur 8,7 milljörðum, eða um 7S%. Skatttekjur hækka heldur minna, eða um tæplega 7%. Til samanburðar má nefna að hækkun skatttekna á sama tíma í fyrra nam tæplega 12% og 16S% árið þar á undan. Sem fyrr endurspegla þessar tölur ört minnkandi vöxt innlendrar eftirspurnar, einkum á þessu ári.


Aukin innheimta skatta á launa- og fjármagnstekjur og hagnað, einstaklinga sem fyrirtækja, skýrir að langmestu leyti tekjuauka ríkissjóðs frá fyrra ári, eða 7 af 8,7 milljörðum króna. Hér gætir að nokkru sérstakra, tímabundinna skýringa sem mun draga úr á næstu mánuðum, svo sem því að á þessu tímabili falla til launahækkanir tveggja tímabila, þ.e. bæði hækkun samkvæmt kjarasamningum vorið 2000 og viðbótarhækkun vorið 2001. Samanlagt eru skattar á tekjur og hagnað ásamt tryggingagjaldi tæplega 5 milljörðum króna umfram áætlun. Eignarskattar eru hins vegar sem næst á áætlun.

Þegar horft er á veltuskatta blasir allt önnur mynd við, en þeir eru tæplega hálfum milljarði lægri í krónutölu en á sama tíma í fyrra og 4 millljörðum króna undir áætlun. Þessi þróun endurspeglar umtalsverðan samdrátt að raungildi, eða sem nemur 5S%. Sem fyrr má einkum rekja þessa þróun til veru-legs sam-dráttar í neysluútgjöldum milli ára, ekki síst bifreiðakaupum, en vörugjöld af inn-flutningi bifreiða hafa dregist saman um meira en 40% milli ára, eða sem nemur 1,3 milljörðum króna. Þessi áhrif koma einnig fram í virðisaukaskatti, en hann er að skila nánast sömu tekjum í krónum talið og á sama tíma í fyrra sem jafngildir tæplega 4% samdrætti að raungildi.

Gjöld
Heildargreiðslur ríkissjóðs námu um 128,2 milljörðum króna fyrstu sjö mánuði ársins og er það 5,5 milljörðum króna umfram áætlun. Frávik koma einkum fram í 1,3 milljarða króna umframgreiðslu lífeyristrygginga í kjölfar hæstaréttardóms um örorkubætur og 1,3 milljarða króna vaxtagreiðslu vegna forinnlausnar spariskírteina. Auk þess skýrist um 0,5 milljarðar af tilfærslu milli mánaða, þar sem mánaðardreifing áætlunar tekur mið af áföllnum rekstrargjöldum innan ársins, en greiðslur Ríkisféhirðis falla til fyrr innan ársins og veldur tilfærslu sem réttist ekki af fyrr en í árslok. Gjöldin hækka um 21,5 milljarða frá fyrra ári og vega þar sex tilefni þyngst, sbr. umfjöllun í yfirlitskaflanum hér að framan.


Almenn mál. Útgjöld til almennra mála, hækka um 600 m.kr. eða 8,7% milli ára. Af einstökum tilefnum munar mestu um kaup á nýjum upplýsingakerfum ríkisins en greiðslur vegna þeirra hófust í júlímánuði. Á móti vegur að greiðslur vegna æðstu stjórnar ríkisins lækka milli ára, m.a. vegna þess að á síðasta ári voru töluverð útgjöld vegna 1000 ára afmælis kristnitökunnar sem ekki koma til í ár. Hækkun gjalda löggæslu og öryggismála nemur 580 m.kr. og þar af eru 240 m.kr. vegna löggæslunnar, en hækkun vegna dómskerfisins og fangelsa nemur 200 m.kr.

Félagsmál. Tæp 60% af útgreiðslum á tímabilinu runnu til ýmissa félagsmála, svo sem fræðslu- menningar-, heilbrigðis- og tryggingamála. Útgjöld til þessa málaflokks hækka í heild um tæpa 12 milljarða króna milli ára. Hækkun vegna fræðslumála nam 1,8 milljörðum króna, eða 17,7% og munar mestu um 350 m.kr. flýtingu greiðslna til Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Fyrirséð er að útlán sjóðsins hækka umfram áætlanir á árinu vegna gengislækkunar íslensku krónunnar. Greiðslur til framhalds- og sérskóla aukast um 880 m.kr., eða 20% sem m.a. skýrist af viðbótaryfirvinnu eftir lok verkfalls framhaldsskólakennara, auk launahækkana í kjölfar kjarasamnings. Greiðslur vegna menningarmála hækka um 570 m.kr. milli ára.

Framlög til heilbrigðismála nema 30,9 milljörðum króna og hækka um 4,5 milljarða króna. Hluti af þeirri hækkun, um 1,3 milljarðar, skýrist af auknum greiðslum til Tryggingastofnunar ríkisins á þessu ári. Á sl. ári jukust útgjöld stofnunarinnar til sjúkratrygginga hraðar en sem nam greiðslum úr ríkissjóði. Þetta hefur nú verið rétt af til að bæta greiðslustöðu stofnunarinnar. Þá hækka rekstrarframlög til sjúkrastofnana um tæpa 1,9 milljarða króna, eða 13% milli ára. Þar af eru 1,5 milljarðar hjá stóru sjúkrahúsunum í Reykjavík og á Akureyri. Hlutfallslega er þó mesta hækkunin hjá öldrunar- og endurhæfingarstofnunum, 1,2 milljarðar króna, eða 29%. Er það að mestu í samræmi við áætlanir fjárlaga, ný hjúkrunarheimili bættust við á tímabilinu, auk þess sem daggjöld hækka og greiðslur færast meira yfir á fyrri hluta ársins.

Greiðslur almannatrygginga hækka um 4,8 milljarða, eða 23,6%. Greiðslur vegna lífeyristrygginga og bóta skv. lögum um félagslega aðstoð hækka um 2,7 milljarða milli ára. Þar munar mestu um áður greinda 1.300 m.kr. greiðslu vegna dóms Hæstaréttar í málefnum öryrkja, en auk þess skýrast 470 m.kr. af tilfærslu milli mánaða til að bæta greiðslustöðu Tryggingastofnunar ríkisins. Þá hafa ný lög um fæðingarorlof leitt til 1.050 m.kr. greiðslu það sem af er árinu. Þá hækka greiðslur til Atvinnuleysistryggingasjóðs um 200 m.kr. milli ára.

Atvinnumál. Útgjöld til atvinnumála hækka samtals um 3,8 milljarða króna, sem er 23% hækkun frá því í fyrra. Greiðslur til samgöngumála hækka um 1,8 milljarða króna. Þar af er 1.100 m.kr. hækkun til Vegagerðarinnar og rúmar 400 m.kr. til Siglingastofnunar. Hækkanirnar eru í samræmi við vega- og hafnaáætlanir. Af einstökum tilefnum munar mestu um uppkaup ríkisins á fullvirðisrétti bænda, en 800 m.kr. eingreiðsla fór til þess verkefnis í ársbyrjun.

Vaxtagreiðslur hækka um 2,5 milljarða króna, eða 22,5%. Þar af hækka greiðslur vegna spariskírteina um 1,2 milljarða króna sem skýrist af því að stór flokkur spariskírteina kom til innlausnar í febrúar. Þá hækka vaxtagreiðslur vegna erlendra lána um 1,2 milljarða króna milli ára.

Önnur útgjöld hækka um rúma 2,1 milljarð króna milli ára, eða 53% vegna tveggja tilefna. Greiðslur til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga hækka um 1,6 milljarða og greiðslur uppbóta á lífeyri sem renna til Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins hækka um 0,5 milljarða króna.

Lánahreyfingar
Fjármunahreyfingar voru neikvæðar um 2,4 milljarða króna fyrstu sjö mánuði ársins, en á sama tíma í fyrra námu innborganir 1,8 milljörðum króna. Skýring á þessum mun kemur einkum fram í því að í janúar á síðasta ári voru innborganir vegna sölu á hlutabréfum í ríkisbönkunum 5,5 milljarðar króna.

Afborganir lána ríkissjóðs námu 22 milljörðum króna og eru að stærstum hluta vegna erlendra lána. Í febrúar var á innlausn flokkur spariskírteina frá árinu 1990 og hafa bréf í þeim flokki verið innleyst fyrir um 8,8 milljarða króna að innlausnarvirði, en þar af voru afborganir 4,8 milljarðar. Auk þess hafa spariskírteini verið forinnleyst úr þremur spariskírteinaflokkum fyrir 3,6 milljarða króna að innlausnarvirði. Þar af nema afborganir 2,2 milljörðum. Uppkaup með þessum hætti beinast að þeim flokkum spariskírteina sem ekki eru nægilega seljanlegir á eftirmarkaði eða stutt eftir að gjalddaga þeirra.

Ákveðið hefur verið að ráðstafa hluta lánsfjárafgangs ríkissjóðs til greiðslu lífeyrisskuldbindinga hans hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins. Greiðslur til sjóðsins námu 8,7 milljörðum króna samanborið við 3,5 milljarða í fyrra.

Lántökur ríkisins námu um 31,9 milljörðum króna. Þar af voru erlendar lántökur til langs tíma 20,7 milljarðar sem að stærstum hluta runnu til niðurgreiðslu annarra erlendra skulda. Það sem af er árinu hefur stofn ríkisvíxla stækkað um 6 milljarða króna, auk þess sem seld hafa verið ríkisbréf í nýjum 6 ára flokki fyrir um 4,9 milljarða króna.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum