Hoppa yfir valmynd
28. september 2001 Innviðaráðuneytið

Ríki Eystrasaltsráðsins samþykkja samstarfsáætlun á sviði upplýsingatækni


Fundur í Riga 28. september 2001


Upplýsingatækniráðherrar ríkja Eystrasaltsráðsins hittust á fundi í Riga þann 28. september sl. Valgerður Sverrisdóttir sótti fundinn fyrir hönd Íslands.

Á fundinum var samþykkt yfirlýsing um samstarf þeirra 11 ríkja sem aðild eiga að Eystrasaltsráðinu, á sviði upplýsingatækni. Í yfirlýsingunni kemur fram að samstarfið mun njóta stuðnings Evrópusambandsins sem tekið hefur virkan þátt í mótun þess ásamt embættismönnum frá ríkjum Eystrasaltsráðsins. Upphaf þessa máls má rekja til ráðherrafundar sem haldinn var í Kolding í Danmörku 12.-13. apríl árið 2000.

Líta ber á þetta samstarf sem svæðisbundið samstarf þar sem Eystrasaltsráðið er í lykilhlutverki en auk þess mun ýmsum svæðisbundnum stofnunum, ríkisstofnunum, einkafyrirtækjum, rannsóknarstofnunum og Evrópusambandinu standa til boða að taka þátt.

Fyrirhugað er að stofna til samstarfsverkefna sem byggja á eEurope, eEurope+ og upplýsingatækniáætlunum landanna. Þegar hafa verið skilgreind eftirfarandi verkefni í verkefnaáætlun sem vísað er til í yfirlýsingu ráðherrafundarins:

High-speed research networks and advanced broadband applications

  • ICT Security
  • eSkills
  • eCommerce
  • eGovernment
  • Indicators
  • eEnvironment

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum