Hoppa yfir valmynd
17. september 2002 Innviðaráðuneytið

Fjölgun ferða Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs

Samgönguráðherra hefur falið Vegagerðinni að ganga til samninga við Samskip hf. um fjölgun ferða Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs.

Samskip hf. sjá um daglegan rekstur ferjunnar. Gert er ráð fyrir að samið verði um fjölgun ferða í samræmi við tillögur starfshóps ráðherra. Starfshópurinn var skipaður í sumar og skilaði nýverið áfangaskýrslu til ráðherra líkt og þegar hefur verið kynnt í fjölmiðlum.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum