Hoppa yfir valmynd
7. nóvember 2002 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurðir 7. nóvember 2002

Þann 7. nóvember 2002, var fundur haldinn í mannanafnanefnd. Fundinn sátu Andri Árnason, formaður, Guðrún Kvaran og Margrét Jónsdóttir.

Eftirtalin mál voru tekin til afgreiðslu:

Mál nr. 74/2002

Eiginnafn: Nadja (kvk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Nadja tekur eignarfallsendingu (Nödju) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Nadja er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

Mál nr. 75/2002

Eiginnafn: Zakaría (kk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Zakaría tekur eignarfallsendingu (Zakaría) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Zakaría er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá

Mál nr. 76/2002

Eiginnafn: Ástvald (kk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Ástvald telst ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls (nafn án nefnifallsendingar). Þá telst nafnið ekki hafa unnið sér hefð í íslensku.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Ástvald hafnað.

Fleira ekki gert.

Fundi slitið.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum