Hoppa yfir valmynd
19. júní 2003 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar-maí 2003. Greinargerð: 19. júní 2003.

Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar-maí 2003 (PDF 19K)

Nú liggja fyrir tölur um greiðsluafkomu ríkissjóðs fyrir fyrstu fimm mánuði ársins. Uppgjörið hér á eftir sýnir sjóðhreyfingar og er sambærilegt við almenn sjóðstreymisyfirlit. Tölurnar eru því ekki samanburðarhæfar við ríkisreikning eða fjárlög ársins sem eru sett fram á rekstrargrunni.

Handbært fé frá rekstri var neikvætt um 9,7 milljarða króna til samanburðar við 8,9 milljarða neikvæða stöðu á sama tíma í fyrra. Fjármunahreyfingar voru jákvæðar um 17 milljarða króna, sem er 16,3 milljörðum betri staða en árið á undan. Jákvæðari staða skýrist nær alfarið af sölu á hlutabréfum ríkisins í Landsbanka Íslands, Búnaðarbanka Íslands og Íslenskum aðalverktökum. Hreinn lánsfjárjöfnuður var jákvæður um 7,4 milljarða króna en var neikvæður um 8,2 milljarða á sama tíma í fyrra.

Heildartekjur ríkissjóðs námu um 108,7 milljörðum króna og hækkuðu um tæpa 17 milljarða frá sama tíma í fyrra eða um 18,3%. Líkt og komið hefur fram í afkomugreinargerðum þessa árs þá felst skýringin á þessum mismun fyrst og fremst í auknum tekjum af sölu hlutabréfa ríkisins. Þar munar mestu um sölu hlutabréfa í Búnaðarbanka Íslands en innstreymi vegna þeirrar hlutafjársölu nam um 10,3 milljörðum króna. Innstreymi vegna hlutabréfasölu í Landsbanka Íslands nam hins vegar rúmlega 400 milljónum króna og innstreymi vegna sölu hlutabréfa í Íslenskum aðalverktökum nam rúmlega 1,3 milljörðum króna.

Skatttekjur ríkissjóðs námu 87,8 milljörðum króna eða um 4,4% meira en á sama tíma í fyrra sem jafngildir um 2,2% raunhækkun milli ára. Innheimtir tekjuskattar einstaklinga námu um 23,3 milljörðum króna eða 4,2% meira en á sama tíma í fyrra. Innheimta tryggingargjalda nam rúmlega 9,5 milljörðum króna og hækkaði um 4,7% á milli ára en til samanburðar má nefna að launavísitala hækkaði um 5,6% á sama tíma. Veltuskattar hækka um 9,8% á milli ára eða sem nemur 7,5% að raungildi. Þar munar mestu um 9,1% meiri innheimtu tekna af virðisaukaskatti. Af öðrum óbeinum sköttum má nefna að talsverð aukning var í innheimtu vörugjalda af ökutækjum eða um 45,8% sem stafar fyrst og fremst af auknum innflutningi bifreiða fyrstu fjóra mánuði ársins. Auk þess hækkar áfengis- og tóbaksgjald umtalsvert eða um 24% frá því á sama tíma í fyrra en um þriðjung þeirrar aukningar má rekja til hækkunar á áfengisgjaldi af sterku áfengi og tóbaksgjaldi.

Greidd gjöld nema rúmum 106 milljörðum króna og hækka um 5S milljarð milli ára. Hækkunin skýrist að mestu af greiðslum til heilbrigðsmála og almannatrygginga. Greiðslur til sjúkrahúsa, sjúkratrygginga og heilsugæslu hækka um 2,9 milljarða króna og þarf af skýrist um milljarður króna af uppgjöri á uppsöfnuðum halla öldrunarstofnana. Greiðslur til almannatrygginga hækka um 2,3 milljarða milli ára og munar það mestu um rúmlega 800 m.kr. hækkun til Atvinnuleysistryggingasjóðs og tæpar 800 m.kr. hjá lífeyristryggingum. Auk þess hækka greiðslur til Fæðingarorlofssjóðs um tæpar 400 m.kr. Hækkun greiðslna til fræðslu- og menningarmála nemur um 800 m.kr. Á móti vegur að vaxtagreiðslur lækka um 2,3 milljarða milli ára, einkum þar sem stór flokkur spariskírteina var á gjalddaga í apríl 2002. Aðrar breytingar milli ára eru minni.

Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar-maí
(Í milljónum króna)
1999
2000
2001
2002
2003
Innheimtar tekjur..................................
72.866
81.013
86.063
91.868
108.695
- Söluhagn. af hlutabr. og eignahl…
-375
0
-3
0
-12.059
Greidd gjöld..........................................
68.562
74.492
91.174
100.746
106.315
Handbært fé frá rekstri.....................
3.928
6.521
-5.112
-8.878
-9.679
Fjármunahreyfingar............................
67
1.125
-2.109
711
17.030
Hreinn lánsfjárjöfnuður....................
3.996
7.647
-7.222
-8.167
7.351
Afborganir lána.................................
-16.801
-19.319
-21.545
-18.348
-17.929
Innanlands......................................
-7.149
-10.529
-6.792
-8.207
-5.521
Erlendis...........................................
-9.652
-8.790
-14.753
-10.141
-12.408
Greiðslur til LSR og LH....................
-767
-2.500
-6.250
-3.750
-3.125
Lánsfjárjöfnuður. brúttó..................
-13.573
-14.171
-35.018
-30.265
-13.702
Lántökur..............................................
8.107
12.704
34.047
28.324
16.540
Innanlands.......................................
-1.126
5.371
9.532
9.035
15.160
Erlendis............................................
9.233
7.333
24.515
19.289
1.380
Greiðsluafkoma ríkissjóðs.............
-5.465
-1.468
-971
-1.941
2.838


Lántökur innanlands námu 16,5 milljörðum króna en afborganir voru 17,9 milljarðar. Þá voru greiddir 3,1 milljarður króna til Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins í því skyni að lækka framtíðarskuldbindingar ríkissjóðs. Erlend skammtímalán voru greidd niður um 10,7 milljarða króna á fyrstu fimm mánuðum ársins.


Tekjur ríkissjóðs janúar-maí
(Í milljónum króna)
Breyting frá fyrra ári. %
2001
2002
2003
2000
2001
2002
2003
Skatttekjur í heild...............................
79.680
84.124
87.844
12,9
5,0
5,6
4,4
Skattar á tekjur og hagnað.............
28.224
30.307
30.558
21,7
16,4
7,4
0,8
Tekjuskattur einstaklinga.................
19.707
22.381
23.312
14,9
13,4
13,6
4,2
Tekjuskattur lögaðila.......................
3.674
2.250
1.384
29,8
19,4
-38,8
-38,5
Skattur á fjármagnstekjur................
4.843
5.678
5.860
56,4
27,4
17,2
3,2
Tryggingagjöld.................................
8.324
9.118
9.545
7,3
8,1
9,5
4,7
Eignarskattar....................................
4.278
4.198
3.394
13,5
14,3
-1,9
-19,2
Skattar á vöru og þjónustu..............
38.684
40.238
44.186
9,0
-3,5
4,0
9,8
Virðisaukaskattur.............................
24.372
26.144
28.519
11,6
-3,1
7,3
9,1
Aðrir óbeinir skattar..........................
14.314
14.092
15.668
4,8
-4,1
-1,6
11,2
Þar af:
Vörugjöld af ökutækjum................
1.372
1.089
1.588
-11,4
-34,7
-20,6
45,8
Vörugjöld af bensíni......................
2.956
2.851
2.906
22,8
-7,0
-3,6
1,9
Þungaskattur.................................
1.939
1.869
1.899
18,2
9,9
-3,6
1,6
Áfengisgjald og tóbaksgjald..........
3.100
3.029
3.761
5,9
-8,1
-2,3
24,2
Annað............................................
4.947
5.254
5.514
-2,0
9,6
6,2
4,9
Aðrir skattar........................................
170
192
161
71,1
30,8
12,9
-16,1
Aðrar tekjur.........................................
6.380
7.744
20.851
-8,6
24,9
21,4
169,3
Tekjur alls...........................................
86.063
91.868
108.695
11,2
6,2
6,7
18,3

    Gjöld ríkissjóðs janúar-maí
    (Í milljónum króna)
    Breyting frá fyrra ári. %
    2001
    2002
    2003
    2000
    2001
    2002
    2003
    Almenn mál........................................
    9.159
    10.928
    11.087
    17,0
    2,7
    19,3
    1,4
    Almenn opinber mál.........................
    5.029
    6.171
    6.144
    17,2
    -1,5
    22,7
    -0,4
    Löggæsla og öryggismál..................
    4.132
    4.757
    4.943
    16,9
    8,3
    15,1
    3,9
    Félagsmál..........................................
    52.243
    58.737
    65.068
    5,1
    19,9
    12,4
    10,8
    Þar af: Fræðslu- og menningarmál.....
    11.575
    13.169
    14.238
    8,4
    15,3
    13,8
    8,1
    Heilbrigðismál..........................
    21.333
    24.447
    27.286
    6,8
    17,5
    14,6
    11,6
    Almannatryggingamál..............
    16.442
    17.599
    19.880
    -0,1
    27,9
    7,0
    13,0
    Atvinnumál........................................
    13.594
    13.865
    14.482
    1,2
    27,4
    2,0
    4,5
    Þar af: Landbúnaðarmál.....................
    5.010
    4.614
    4.773
    2,6
    29,6
    -7,9
    3,4
    Samgöngumál..........................
    5.105
    5.517
    5.661
    0,6
    29,0
    8,1
    2,6
    Vaxtagreiðslur...................................
    11.690
    12.469
    10.120
    25,0
    39,3
    6,7
    -18,8
    Aðrar greiðslur..................................
    4.486
    4.747
    5.559
    31,2
    52,7
    5,8
    17,1
    Greiðslur alls.....................................
    91.174
    100.746
    106.315
    8,6
    22,4
    10,5
    5,5




    Efnisorð

    Hafa samband

    Ábending / fyrirspurn
    Ruslvörn
    Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum