Hoppa yfir valmynd
7. september 2003 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurðir 7. september 2003

Þann 4. september 2003, var fundur haldinn í Mannanafnanefnd, í húsakynnum Háskóla Íslands, v/Suðurgötu, Reykjavík. Fundinn sátu Andri Árnason, formaður og Margrét Jónsdóttir. Guðrún Kvaran tók þátt í fundinum í gegnum fjarskiptabúnað.

Eftirtalin mál voru tekin til afgreiðslu:

Mál nr. 54/2003

Eiginnafn: Hendrikka (kvk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Með tilliti til fjölda nafnbera telst eiginnafnið Hendrikka hafa unnið sér hefð í íslensku máli, sbr. vinnulagsreglur mannanafnanefndar frá 7. september 2000, og uppfyllir því skilyrði 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Hendrikka er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

Mál nr. 55/2003

Eiginnafn: Steini (kk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Steini tekur eignarfallsendingu (Steina) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Steini er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

Mál nr. 56/2003

Eiginnafn: Didda (kvk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Didda tekur eignarfallsendingu (Diddu) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Didda er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

Mál nr. 57/2003

Eiginnafn: Bogga (kvk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Bogga tekur eignarfallsendingu (Boggu) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Bogga er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

Mál nr. 58/2003

Eiginnafn: Bruno (kk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Með tilliti til fjölda nafnbera telst eiginnafnið Bruno hafa unnið sér hefð í íslensku máli, sbr. vinnulagsreglur mannanafnanefndar frá 7. september 2000, og uppfyllir því skilyrði 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Bruno er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

Mál nr. 59/2003

Eiginnafn: Amíra (kvk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Amíra tekur eignarfallsendingu (Amíru) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Amíra er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

Mál nr. 60/2003

Eiginnafn: Kristian (kk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Með tilliti til fjölda nafnbera telst eiginnafnið Kristian hafa unnið sér hefð í íslensku máli, sbr. vinnulagsreglur mannanafnanefndar frá 7. september 2000, og uppfyllir því skilyrði 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Kristian er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

Fleira ekki gert.

Fundi slitið.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum