Hoppa yfir valmynd
23. október 2003 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar-september 2003. Greinargerð: 23. október 2003


Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar- september 2003 (PDF 21K)


Nú liggja fyrir tölur um greiðsluafkomu ríkissjóðs fyrstu níu mánuði ársins. Uppgjörið hér á eftir sýnir sjóðhreyfingar og er því ekki samanburðarhæft við ríkisreikning eða fjárlög ársins sem eru sett fram á rekstrargrunni.

Handbært fé frá rekstri var neikvætt um 20,6 milljarða króna samanborið við 19,6 milljarða neikvæða stöðu á sama tíma í fyrra. Hins vegar var Fjármunahreyfingar voru hins vegar jákvæðar um 19,5 milljarða króna í ár sem er tæpum 13 milljörðum króna betri staða en í fyrra. Þar munar mestu um sölu hlutabréfa í Landsbanka Íslands, Búnaðarbanka Íslands og Íslenskum aðalverktökum, en innstreymi vegna hlutafjársölu nam um 12 milljörðum króna. Lánsfjárþörf ríkissjóðs á fyrstu níu mánuðum ársins 2003 nam 1,1 milljarði króna samanborðið við 12,9 milljarða króna á sama tíma í fyrra. Lánsfjárþörf ríkissjóðs á fyrstu níu mánuðum ársins 2003 nam því aðeins 1,1 milljarði króna samanborið við 12,9 milljarða króna lánsfjárþörf á sama tíma í fyrra.

Heildartekjur ríkissjóðs til septemberloka námu 187,3 milljörðum króna og hækkuðu um 19,3 milljarða frá fyrra ári, eða um 11,5%. Skatttekjur ríkissjóðs hækkuðu mun minna eða um 6,5% frá árinu á undan sem jafngildir um 4,5% raunhækkun. Skýringin á þÞessium mismunur skýristfelst alfarið af fyrst og fremst í auknum tekjum af sölu hlutabréfa ríkissjóðs. Innheimtir tekjuskattar einstaklinga námu um 39,4 milljörðum króna og hækkuðu um 5% frá fyrra ári. Til samanburðar hækkað launavísitala Hagstofu Íslands um 5,6% á þessu tímabili. Munurinn stafar meðal annars af minni launahækkun ýmissa stétta sem ekki eru í launavísitölunni auk þess sem aukinn viðbótarÞetta er heldur minni hækkun en nemur hækkun Innheimta tryggingagjalda nam tæpum 18,7 milljörðum króna og jókst einnig verulega eða um 10,9% á milli ára. Þessi aukna innheimta af tekjuskatti einstaklinga og tryggingagjalds endurspeglar almennar launahækkanir, , auk þess sem hækkun tryggingagjaldsins, um S%, tók gildi í byrjun þessa árs. Innheimta eignaskatta lækkaði hins vegar um 15,9% frá fyrra ári, enda voru bæði eignaskattar fyrirtækja og einstaklinga lækkaðir um meira en helming á þessu ári. Innheimta af tekjuskatti fyrirtækja lækkaði einnig verulega eða um 26,3% en hér ber að hafa í huga að tekjuskattur fyrirtækja var lækkaður um 40% á þessu tímabili. Innheimta veltuskatta ríkissjóðs hækkaði á hinn bóginn um 10,9% á milli ára eða sem nemur 8,8% að raungildi. Af öðrum óbeinum sköttum má nefna að talsverð aukning varð í innheimtu vörugjalda af bifreiðum sem stafar fyrst og fremst af auknum innflutningi bifreiða. Mesta breytingin var hins vegar sú að tekjur af sölu eigna hækkuðu um 8,7 milljarða króna milli ára eins og áður kom fram.

Greidd gjöld nema 195,9 milljörðum króna og hækka um 11,5 milljarða frá fyrra ári, eða um 6,2%. Veigamestu útgjöldin eru til félagsmála, eða 125,7 milljarðar, en þau vega 64% af heildarútgjöldum ríkissjóðs. Þar munar mestu um útgjöld til heilbrigðismála, sem nema 51,4 milljörðum króna og hækka um 5,1 milljarð króna frá fyrra ári. Þá nema greiðslur til almannatrygginga um 41,3 milljörðum og hækka um 5,4 milljarða króna. Greiðslur til atvinnumála eru 28,7 milljarðar og hækka um 1,4 milljarða frá fyrra ári. Á móti vegur að vaxtagreiðslur lækka um 4 milljarða króna, eða sem nemur rúmlega 24% milli ára. Stór flokkur spariskírteina var á gjalddaga í apríl í fyrra og skýrir það lækkun vaxtagreiðslna.


Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar-september
(Í milljónum króna)

1999
2000
2001
2002
2003
Innheimtar tekjur..................................
135.145
148.440
158.218
168.001
187.293
- Söluhagn. af hlutabr. og eignahl…
-389
-38
3
-3.252
-12.013
Greidd gjöld..........................................
127.005
143.572
165.121
184.347
195.857
Handbært fé frá rekstri.....................
7.751
4.830
-6.901
-19.598
-20.577
Fjármunahreyfingar............................
1.016
748
-1.830
6.748
19.467
Hreinn lánsfjárjöfnuður....................
8.767
5.577
-8.731
-12.850
-1.110
Afborganir lána.................................
-18.846
-28.766
-22.214
-22.698
-19.498
Innanlands......................................
-9.138
-15.232
-7.410
-10.597
-7.048
Erlendis...........................................
-9.708
-13.534
-14.804
-12.101
-12.450
Greiðslur til LSR og LH....................
-1.584
-4.500
-10.625
-6.750
-5.625
Lánsfjárjöfnuður. brúttó..................
-11.663
-27.686
-41.569
-42.298
-26.233
Lántökur..............................................
8.122
21.441
36.668
50.238
31.467
Innanlands.......................................
-1.234
2.965
11.841
14.627
30.253
Erlendis............................................
9.356
18.476
24.827
35.611
1.214
Greiðsluafkoma ríkissjóðs.............
-3.540
-6.247
-4.900
7.940
5.234



Lántökur ríkissjóðs námu 31,5 milljörðum króna á fyrstu níu mánuðum ársins en afborganir voru 19,5 milljarðar. Erlend skammtímalán voru greidd niður um 10,9 milljarða og spariskírteini um 4,8 milljarða króna. Á móti vegur aukin lántaka í innlendum skammtímalánum, eða um 28 milljarða króna. Þá voru 5,6 milljarðar greiddir til Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins í því skyni að lækka framtíðarskuldbindingar ríkissjóðs.

Tekjur ríkissjóðs janúar-september
(Í milljónum króna)

Breyting frá fyrra ári. %
2001
2002
2003
2000
2001
2002
2003
Skatttekjur í heild...............................
146.773
152.463
162.306
10,4
6,5
3,9
6,5
Skattar á tekjur og hagnað.............
47.621
49.034
50.119
17,9
21,2
3,0
2,2
Tekjuskattur einstaklinga.................
34.896
37.545
39.414
14,1
17,0
7,6
5,0
Tekjuskattur lögaðila.......................
7.295
4.428
3.264
17,7
36,4
-39,3
-26,3
Skattur á fjármagnstekjur................
5.430
7.061
7.442
56,9
32,3
30,0
5,4
Tryggingagjöld.................................
15.508
16.828
18.658
8,5
10,7
8,5
10,9
Eignarskattar....................................
7.499
7.337
6.174
17,0
9,9
-2,2
-15,9
Skattar á vöru og þjónustu..............
75.717
78.799
86.996
6,8
-2,1
4,1
10,4
Virðisaukaskattur.............................
48.105
51.122
56.313
9,8
-0,9
6,3
10,2
Aðrir óbeinir skattar..........................
27.612
27.677
30.683
2,0
-4,0
0,2
10,9
Þar af:
Vörugjöld af ökutækjum................
2.347
2.178
3.353
-11,2
-42,3
-7,2
53,9
Vörugjöld af bensíni......................
5.671
5.592
5.812
6,0
-3,5
-1,4
3,9
Þungaskattur.................................
3.771
3.654
3.772
16,3
8,0
-3,1
3,2
Áfengisgjald og tóbaksgjald..........
6.309
6.375
7.432
3,8
-1,9
1,0
16,6
Annað............................................
9.514
9.878
10.313
0,3
6,8
3,8
4,4
Aðrir skattar........................................
428
465
359
16,1
18,6
8,6
-22,8
Aðrar tekjur.........................................
11.446
15.537
24.987
3,1
7,5
35,7
60,8
Tekjur alls...........................................
158.216
168.001
187.293
9,8
6,6
6,2
11,5


Gjöld ríkissjóðs janúar-september
(Í milljónum króna)

Breyting frá fyrra ári. %
2001
2002
2003
2000
2001
2002
2003
Almenn mál........................................
16.619
20.057
19.917
13,7
4,3
20,7
-0,7
Almenn opinber mál.........................
9.490
11.354
10.871
12,4
6,5
19,6
-4,3
Löggæsla og öryggismál..................
7.130
8.703
9.046
15,4
1,5
22,1
3,9
Félagsmál..........................................
99.209
112.582
125.717
9,1
14,6
13,5
11,7
Þar af: Fræðslu- og menningarmál.....
21.194
23.831
25.754
9,8
14,2
12,4
8,1
Heilbrigðismál..........................
39.926
46.289
51.417
12,4
9,8
15,9
11,1
Almannatryggingamál..............
32.327
35.916
41.296
3,5
21,6
11,1
15,0
Atvinnumál........................................
26.277
27.268
28.686
6,0
18,8
3,8
5,2
Þar af: Landbúnaðarmál.....................
8.062
8.210
8.251
1,4
23,5
1,8
0,5
Samgöngumál..........................
11.729
12.315
13.178
8,0
17,9
5,0
7,0
Vaxtagreiðslur...................................
15.294
16.403
12.442
54,3
10,3
7,3
-24,1
Aðrar greiðslur..................................
7.737
8.036
9.095
33,8
52,0
3,9
13,2
Greiðslur alls.....................................
165.121
184.347
195.857
13,0
15,0
11,6
6,2



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum