Hoppa yfir valmynd
28. október 2003 Innviðaráðuneytið

Vígsla Arnarstapahafnar

Höfnin á Arnarstapa á Snæfellsnesi var vígð 24. október síðastliðinn. Samgönguráðherra opnaði hafnarsvæðið formlega.

Á síðastliðnum tveimur árum hefur verið unnið að endurbótum hafnarinnar. Meðal annars hefur gamli hafnargaðurinn verið lengdur og gerðar á honum endurbætur. Einnig var hlaðinn garður milli lendingarkletts og hafnarhúss. Þá var gerð ný innsigling við höfnina og nýr vegur lagður upp frá höfninni. Tveir útsýnispallar hafa verið byggðir við höfnina fyrir ferðafólk, annar með aðgengi fyrir fatlaða.Björn Arnaldsson hafnarstjóri og Þórður Stefánsson, formaður hafnarnefndar, aðstoða Sturlu Böðvarsson samgönguráðherra við að klippa á borðann.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum