Hoppa yfir valmynd
8. janúar 2004 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurður 8. janúar 2004

Þann 8. janúar 2004, var fundur haldinn í Mannanafnanefnd, í húsnæði Orðabókar Háskólans, Nesvegi 16, Reykjavík.

Fundinn sátu Andri Árnason, formaður, Guðrún Kvaran og Margrét Jónsdóttir.

Eftirtalin mál voru tekin til afgreiðslu:

Mál nr. 1/2004

Eiginnafn: Ylur (kk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Ylur tekur eignarfallsendingu (Yls) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Ylur er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

Mál nr. 2/2004

Millinafn: Ljós

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Millinafnið Ljós telst fullnægja skilyrðum 2. mgr. 6. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn og skal fært á mannanafnaskrá.

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Ljós er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

Mál nr. 3/2004

Eiginnafn: Theophilus (kk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Nafnið Theophilus telst hvorki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls né hefur það unnið sér hefð í íslensku, sbr. 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Beiðni um eiginnafnið Theophilus er því hafnað.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Theophilus er hafnað.

---

Fleira ekki gert.

Fundi slitið.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum