Hoppa yfir valmynd
12. febrúar 2004 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurðir 12. febrúar 2004

Þann 12. febrúar 2004, var fundur haldinn í Mannanafnanefnd, í húsnæði Orðabókar Háskólans, Nesvegi 16, Reykjavík.

Fundinn sátu Andri Árnason, formaður, Guðrún Kvaran og Margrét Jónsdóttir.

Eftirtalin mál voru tekin til afgreiðslu:

Mál nr. 4/2004

Eiginnafn: Kakali (kk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Kakali tekur eignarfallsendingu (Kakala) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Kakali er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

Mál nr. 5/2004

Eiginnafn: París (kvk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið París tekur eignarfallsendingu (Parísar) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið París er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

Mál nr. 6/2004

Millinafn: Trevenen

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Samkvæmt 2. mgr. 6. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn skal millinafn vera dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa unnið sér hefð í íslensku. Millinafnið Trevenen telst ekki fullnægja tilgreindum skilyrðum laganna og er því hafnað.

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Trevenen er hafnað.

Mál nr. 7/2004

Eiginnafn: Gaui (kk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Gaui tekur eignarfallsendingu (Gauja) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Gaui er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

Mál nr. 8/2004

Millinafn: Elísberg

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Millinafnið Elísberg telst fullnægja skilyrðum 2. mgr. 6. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn og verður fært á mannanafnaskrá.

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Elísberg er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

Mál nr. 9/2004

Eiginnafn: Aðalbert (kk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Aðalbert tekur eignarfallsendingu (Aðalberts) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Aðalbert er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

Mál nr. 10/2004

Eiginnafn: Skuld (kvk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Skuld tekur eignarfallsendingu (Skuldar) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Skuld er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

Mál nr. 11/2004

Eiginnafn: Fúsi (kk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Fúsi tekur eignarfallsendingu (Fúsa) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Fúsi er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

Mál nr. 12/2004

Millinafn: Austfjörð

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Millinafnið Austfjörð telst fullnægja skilyrðum 2. mgr. 6. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn og verður fært á mannanafnaskrá.

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Austfjörð er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

---

Fleira ekki gert.

Fundi slitið.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum