Hoppa yfir valmynd
16. nóvember 2004 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurður 16. nóvember 2004

Þann 16. nóvember 2004, var fundur haldinn í Mannanafnanefnd, í húsnæði Orðabókar Háskólans, Nesvegi 16, Reykjavík.

 Fundinn sátu Andri Árnason, formaður, Guðrún Kvaran og Margrét Jónsdóttir.

 

Eftirtalin mál voru tekin til afgreiðslu:

 

Mál nr. 87/2004

 

Eiginnafn: Ísalind (kvk.)

 

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Eiginnafnið Ísalind tekur eignarfallsendingu (Ísalindar) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Ísalind er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

 

Mál nr. 88/2004

 

Eiginnafn: Jóvin (kvk.)

                                                                                                                 

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Nafnið Jóvin hefur verið notað sem karlmannsnafn í íslensku máli. Endingin -vin er algeng í karlmannsnöfnum og er hefð þessa að rekja til styttingar orðsins vinur (stytt nefnifallsmynd).  Er því ekki unnt að fallast á kvenmannsnafn með þessari endingu. Beiðni þessari er því hafnað.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Jóvin (kvk) er hafnað.

 

Mál nr. 89/2004

 

Eiginnafn: Inghildur (kvk.)

                                                                                 

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Eiginnafnið Inghildur tekur eignarfallsendingu (Inghildar) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

 

Beiðni um eiginnafnið Inghildur er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

 

Mál nr. 90/2004

 

Eiginnafn: Elektra (kvk.)

                                           

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Eiginnafnið Elektra tekur eignarfallsendingu (Elektru) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

 

Beiðni um eiginnafnið Elektra er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

 

Mál nr. 91/2004

 

Eiginnafn: Mattý (kvk.)

 

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Eiginnafnið Mattý tekur eignarfallsendingu (Mattýar) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Mattý er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

 

Mál nr. 92/2004

 

Breyting á rithætti: Zophonías verði Zóphonías

                                              

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Beiðni um breytingu á rithætti úr Zophonías í Zóphonías er samþykkt.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um breytingu á rithætti úr Zophonías í Zóphonías er samþykkt.

 

Mál nr. 93/2004

 

Eiginnafn: Vilbjörn (kk.)

 

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Eiginnafnið Vilbjörn tekur eignarfallsendingu (Vilbjörns) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Vilbjörn er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

 

Mál nr. 94/2004

 

Breyting á rithætti: Tanja verði Tanya

                                               

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Beiðni um breytingu á rithætti úr Tanja í Tanya er samþykkt.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um breytingu á rithætti úr Tanja í Tanya er samþykkt.

 

Fleira ekki gert, fundi slitið.

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum