Hoppa yfir valmynd
30. desember 2004 Innviðaráðuneytið

Uppreiknuð tekju- og eignamörk vegna félagslegra leiguíbúða

Í reglugerð um lánveitingar til leiguíbúða, ráðstöfun þeirra og rekstur, nr. 873/2001, er við hækkun á tekju- og eignamörkum miðað við hækkun á neysluverðsvísitölu. Í reglugerðinni er miðað við árlega hækkun neysluverðsvísitölu 1. janúar ár hvert og kveðið á um að félagsmálaráðherra skuli láta reikna viðmiðunarfjárhæðirnar í upphafi hvers árs og birta nýjar fjárhæðir. Hækkunin nemur rúmlega 3,9% á síðustu 12 mánuðum samkvæmt gögnum frá Hagstofu Íslands.

Við útreikning á tekju- og eignamörkum er miðað við hækkun á neysluverðsvísitölu frá 1. janúar 2004 til 1. janúar 2005. Tekjumörk skv. 23. og 24. gr. reglugerðar nr. 873/2001 eru nú sem hér segir:

Félagslegar leiguíbúðir skv. 23. og 24. gr. reglugerðar um lánveitingar til leiguíbúða, ráðstöfun þeirra og rekstur, nr. 873/2001

Tekju- og eignamörk vegna umsækjenda verða þá svohljóðandi eftir 1. janúar 2005:

  • Tekjur fyrir einstakling 2.411.000 kr.,
  • Tekjur fyrir hvert barn að 20 ára aldri sem býr á heimilinu 404.000 kr.,
  • Tekjur fyrir hjón og sambúðarfólk 3.376.000 kr.,
  • Eignamörk verða 2.603.000 kr.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum