Hoppa yfir valmynd
18. febrúar 2005 Innviðaráðuneytið

Undirritun samkomulags

Undirritun samkomulags um hlutverk og rekstur
Undirritun samkomulags

Árni Magnússon félagsmálaráðherra undirritaði fimmtudaginn 17. febrúar sl. nýtt samkomulag um rekstur Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna ásamt öðrum aðilum að rekstrinum.

Aðilar að samkomulaginu eru félagsmálaráðuneyti, Íbúðalánasjóður, Reykjavíkurborg, Kaupþing Búnaðarbanki Íslands hf., Íslandsbanki hf., Landsbanki Íslands hf., Samband íslenskra sparisjóða, Samband íslenskra sveitarfélaga, þjóðkirkjan, Landssamtök lífeyrissjóða, Alþýðusamband Íslands, Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, Bandalag háskólamanna og Rauði kross Íslands.

Samkomulagið gildir til 31. desember 2007. Bandalag háskólamanna og Rauði kross Íslands eru nýir aðilar að samstarfinu og er það sérstakt fagnaðarefni.

Kreditkort hf. og Samband íslenskra tryggingafélaga hafa verið styrktaraðilar og hafa samþykkt að halda því áfram á samningstímabilinu sem framundan er.

Jafnframt mun á samningstímabilinu verða leitað eftir fleiri aðilum til að styrkja reksturinn, til dæmis til sveitarfélaga og annarra aðila sem koma að þessum málum. Akureyrarkaupstaður og Kópavogsbær hafa gert sérstakan þjónustusamning við Ráðgjafarstofuna fyrir árið 2005 og er unnið að áframhaldandi samstarfi við Sveitarfélagið Árborg.

Ráðgjafarstofan var sett á laggirnar sem tilraunaverkefni af félagsmálaráðuneyti í febrúar 1996. Frá stofnun Ráðgjafarstofu hafa tæplega 6.000 fjölskyldur á Íslandi fengið aðstoð við að leysa úr fjárhagserfiðleikum sínum. Auk þess hafa nokkur þúsund manns fengið ráðgjöf símleiðis, en símaráðgjöf er veitt alla virka daga. Sérstaða og styrkur Ráðgjafarstofunnar liggur í góðu samstarfi og samvinnu margra aðila sem starfa í samkeppnisumhverfi og að mismunandi hagsmunum. Á vettvangi Ráðgjafarstofunnar sameinast þessir fjórtán aðilar um að leggja fram fjármagn og krafta sína til að leysa vanda íslenskra fjölskyldna og stuðla að fræðslu varðandi fjármál.

Vandamál viðskiptavina Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna eru eins misjöfn og þau eru mörg. Íslendingar búa við ein bestu lífskjör sem þekkjast í heiminum. Á síðustu árum hafa veikindi, atvinnumissir eða tekjulækkun verið langalgengustu ástæður þess að viðskiptavinir leita til Ráðgjafarstofunnar. Ráðgjafarstofan hefur mikilvægu samfélagslegu hlutverki að gegna varðandi velferð fjölskyldna í landinu og er til staðar þegar eitthvað bjátar á. Ánægjulegt er að svo margir aðilar skuli sameinast undir hatti Ráðgjafarstofunnar til að leysa vanda þeirra sem eiga í fjárhagslegum erfiðleikum. Ráðgjafarstofan er með heimasíðu á vefsvæðinu fjolskylda.is og er þar miðlað ýmsum upplýsingum varðandi greiðsluerfiðleika og þjónustu Ráðgjafarstofunnar.

Skjal fyrir Acrobat ReaderSamkomulag um hlutverk og rekstur Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna (PDF, 350 KB)

Tenging frá vef ráðuneytisins

Heimasíða Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna

Undirritun samkomulags um hlutverk og rekstur Undirritun samkomulags um hlutverk og rekstur
 




Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum