Hoppa yfir valmynd
16. mars 2005 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Ísland er í öðru sæti yfir þjóðir heims sem nýta vel nýja upplýsinga- og fjarskiptatækni

Af þeim 104 þjóðum sem Alþjóðaefnahagsráðið nær til er Ísland í 2. sæti yfir þjóðir sem nýta vel nýja upplýsinga- og fjarskiptatækni.

Þetta kemur fram í árlegri skýrslu Alþjóðaefnahagsráðsins (World Economic Forum), einugis Singapúr stendur okkur framar í ár. Norðurlandaþjóðirnar eru allar ofarlega á lista, Finnland í 3. sæti, Danmörk í 4. sæti, Svíþjóð í 6. sæti og Noregur í því þrettánda. Af þeim löndum sem trónað hafa ofarlega á listanum undanfarin ár, færist Ísland mest upp á listanum, frá 10. sæti í fyrra.

Skýrsluna Global Information Technology Report 2004-2005 má sækja á heimasíðu World Economic Forum



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum