Hoppa yfir valmynd
24. nóvember 2005 Dómsmálaráðuneytið

Tveir sýslumenn fluttir til í embætti

Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að Anna Birna Þráinsdóttir, sýslumaður í Búðardal og Áslaug Þórarinsdóttir, sýslumaður á Hólmavík verði fluttar til í embætti.

Fréttatilkynning
38/2005


Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að Anna Birna Þráinsdóttir, sýslumaður í Búðardal, verði flutt í embætti sýslumannsins í Vík. Jafnframt hefur ráðherra ákveðið að Áslaug Þórarinsdóttir, sýslumaður á Hólmavík, verði flutt í embætti sýslumannsins í Búðardal. Öðlast ákvarðanirnar gildi frá og með 1. janúar 2006.


Reykjavík 24. nóvember 2005



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum