Hoppa yfir valmynd
17. janúar 2006 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Útgáfa ritsins Þjóðarbúskapurinn árið 2006

Frétt úr Vefriti fjármálaráðuneytisins – þú getur gerst áskrifandi að vefritinu.

Á árinu 2006 verður ritið Þjóðarbúskapurinn gefið út fjórum sinnum í stað þriggja útgáfna undanfarin ár.

Þá verður útgáfan með aðeins öðrum hætti en verið hefur. Á vetrar- og sumarmánuðum verða gefnar út endurskoðaðar þjóðhagsspár til tveggja eða þriggja ára í senn. Þessar skýrslur verða styttri en verið hefur, með færri töflum í viðauka og verða einungis birtar á vef fjármálaráðuneytisins. Fleiri töflur verða þó uppfærðar á vef ráðuneytisins í tengslum við útgáfuna.

Í vetrarskýrslu verður þjóðhagsspáin uppfærð í ljósi ákvarðana Alþingis um fjárlög og fjáraukalög til viðbótar við nýjar upplýsingar um efnahagsþróun.

Á vor- og haustmánuðum verða gefnar út ítarlegri spár með áherslu á framvindu efnahagslífsins til meðallangs tíma, eða fjögurra til fimm ára í senn, og ítarlegum töfluviðauka. Á haustmánuðum er jafnframt birt spá á grundvelli nýrra forsendna um ríkisfjármálin sem felast í fjárlagafrumvarpinu.

Vor- og haustskýrslur verða gefnar út á prentuðu formi.

Útgáfuáætlun fjármálaráðuneytisins fyrir ritið Þjóðarbúskapurinn er sem hér segir fyrir árið 2006:

24. janúar 2006
Endurskoðuð þjóðhagsspá fyrir árin 2005 – 2007

25. apríl 2006
Þjóðhagsspá fyrir árin 2006 – 2010

20. júní 2006
Endurskoðuð þjóðhagsspá fyrir árin 2006 – 2007

2. október 2006
Þjóðhagsspá fyrir árin 2006 – 2010



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum