Hoppa yfir valmynd
23. janúar 2006 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Listi yfir forstöðumenn 23. janúar 2006

Hér er listi yfir forstöðumenn skv. 2. mgr. 22. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996 með síðari breytingum.

Í 1. mgr. 22. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996 með síðari breytingum eru taldir upp í 13 töluliðum þeir sem teljast embættismenn samkvæmt lögunum. Í 2. mgr. segir að fjármálaráðherra skeri úr því hvaða starfsmenn falli undir 13. tölulið þessarar greinar, þ.e. forstöðumenn ríkisstofnana og ríkisfyrirtækja sem ekki eru taldir sérstaklega upp í 1.-12. tölulið. Jafnframt segir að ráðherra skuli fyrir 1. febrúar ár hvert birta í Lögbirtingablaði lista yfir þá starfsmenn.

Listinn birtur fyrir 1. febrúar 2006 er svohljóðandi:

Forsætisráðuneyti
Bankastjórar Seðlabanka Íslands
Forstöðumaður Þjóðmenningarhúss

Dóms- og kirkjumálaráðuneyti
Forstjóri Landhelgisgæslu Íslands
Forstjóri Persónuverndar

Félagsmálaráðuneyti
Forstjóri Barnaverndarstofu
Forstjóri Vinnueftirlits ríkisins
Forstjóri Vinnumálastofnunar
Forstöðumaður Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins
Framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs
Framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu
Framkvæmdastjóri svæðisskrifstofu málefna fatlaðra, Austurlandi
Framkvæmdastjóri svæðisskrifstofu málefna fatlaðra, Norðurlandi eystra
Framkvæmdastjóri svæðisskrifstofu málefna fatlaðra, Norðurlandi vestra
Framkvæmdastjóri svæðisskrifstofu málefna fatlaðra, Reykjanesi
Framkvæmdastjóri svæðisskrifstofu málefna fatlaðra, Reykjavík
Framkvæmdastjóri svæðisskrifstofu málefna fatlaðra, Suðurlandi
Framkvæmdastjóri svæðisskrifstofu málefna fatlaðra, Vestfjörðum
Framkvæmdastjóri svæðisskrifstofu málefna fatlaðra, Vesturlandi

Fjármálaráðuneyti
Fjársýslustjóri
Forstjóri Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins
Forstöðumaður Fasteigna ríkissjóðs
Forstjóri Fasteignamats ríkisins
Forstjóri Framkvæmdasýslu ríkisins
Forstjóri Lánasýslu ríkisins
Forstjóri Ríkiskaupa

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti
Forstjóri Landspítala - háskólasjúkrahúss
Forstjóri Lyfjastofnunar
Forstjóri Lýðheilsustöðvar
Forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins
Forstöðumaður Geislavarna ríkisins
Framkvæmdastjóri Fjórðungssjúkrahússins Akureyri
Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands
Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands
Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga
Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunarinnar Akranesi
Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunarinnar Blönduósi
Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunarinnar Bolungarvík
Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunarinnar Hólmavík
Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunarinnar Hvammstanga
Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunarinnar Ísafjarðarbæ
Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunarinnar Patreksfirði
Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunarinnar Sauðárkróki
Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunarinnar Siglufirði
Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunarinnar Suðurnesjum
Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunarinnar Vestmannaeyjum
Framkvæmdastjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
Framkvæmdastjóri Heilsugæslustöðvarinnar Borgarnesi
Framkvæmdastjóri Heilsugæslustöðvarinnar Dalvík
Framkvæmdastjóri Heilsugæslustöðvarinnar Grundarfirði
Framkvæmdastjóri Heilsugæslustöðvarinnar Ólafsvík
Framkvæmdastjóri Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands
Framkvæmdastjóri St. Jósefsspítala, Sólvangur
Landlæknir
Yfirlæknir Þjónustu- og endurhæfingarstöðvar sjónskertra

Iðnaðarráðuneyti
Forstjóri Byggðastofnunar
Forstjóri Einkaleyfastofunnar
Forstjóri Iðntæknistofnunar Íslands
Forstjóri Íslenskra orkurannsókna
Forstjóri Rannsóknastofnunar byggingariðnaðarins
Orkumálastjóri
Rafmagnsveitustjóri ríkisins

Landbúnaðarráðuneyti
Forstjóri Landbúnaðarstofnunar
Forstöðumaður Hagþjónustu landbúnaðarins
Framkvæmdastjóri Veiðimálastofnunar
Landgræðslustjóri
Rektor Landbúnaðarháskóla Íslands
Skógræktarstjóri
Skólameistari Hólaskóla

Menntamálaráðuneyti
Forstjóri Námsgagnastofnunar
Forstöðumaður Blindrabókasafns Íslands
Forstöðumaður Fornleifaverndar ríkisins
Forstöðumaður Húsafriðunarnefndar
Forstöðumaður Íslenskrar málstöðvar
Forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar Íslands
Forstöðumaður Kvikmyndasafns Íslands
Forstöðumaður Listasafns Einars Jónssonar
Forstöðumaður Listasafns Íslands
Forstöðumaður Námsmatsstofnunar
Forstöðumaður Rannsóknamiðstöðvar Íslands
Forstöðumaður Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra
Forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar á Íslandi
Forstöðumaður Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum
Forstöðumaður Örnefnastofnunar Íslands
Framkvæmdastjóri Lánasjóðs íslenskra námsmanna
Landsbókavörður
Listdansstjóri Íslenska dansflokksins
Rektor Háskóla Íslands
Rektor Háskólans á Akureyri
Rektor Kennaraháskóla Íslands
Skólameistari Borgarholtsskóla
Skólameistari Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra
Skólameistari Fjölbrautaskóla Snæfellinga
Skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurlands
Skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja
Skólameistari Fjölbrautaskóla Vesturlands
Skólameistari Fjölbrautaskólans Ármúla
Skólameistari Fjölbrautaskólans í Breiðholti
Skólameistari Fjölbrautaskólans í Garðabæ
Skólameistari Flensborgarskóla
Skólameistari Framhaldsskólans í A-Skaftafellssýslu
Skólameistari Framhaldsskólans á Húsavík
Skólameistari Framhaldsskólans á Laugum
Skólameistari Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum
Skólameistari Iðnskólans í Hafnarfirði
Skólameistari Iðnskólans í Reykjavík
Skólameistari Kvennaskólans í Reykjavík
Skólameistari Menntaskólans á Akureyri
Skólameistari Menntaskólans á Egilsstöðum
Skólameistari Menntaskólans við Hamrahlíð
Skólameistari Menntaskólans á Ísafirði
Skólameistari Menntaskólans í Kópavogi
Skólameistari Menntaskólans að Laugarvatni
Skólameistari Menntaskólans í Reykjavík
Skólameistari Menntaskólans við Sund
Skólameistari Verkmenntaskóla Austurlands
Skólameistari Verkmenntaskólans á Akureyri
Skólastjóri Listdansskólans
Útvarpsstjóri
Þjóðleikhússtjóri
Þjóðminjavörður
Þjóðskjalavörður

Samgönguráðuneyti
Ferðamálastjóri
Flugmálastjóri
Forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar
Forstöðumaður rannsóknarnefndar flugslysa
Forstöðumaður rannsóknarnefndar umferðarslysa
Framkvæmdastjóri Umferðarstofu
Siglingamálastjóri
Vegamálastjóri

Sjávarútvegsráðuneyti
Fiskistofustjóri
Forstjóri Hafrannsóknastofnunarinnar
Forstjóri Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins
Forstöðumaður Skrifstofu rannsóknastofnana atvinnuveganna
Forstöðumaður Verðlagsstofu skiptaverðs

Umhverfisráðuneyti
Brunamálastjóri
Forstjóri Landmælinga Íslands
Forstjóri Náttúrufræðistofnunar Íslands
Forstöðumaður Náttúrurannsóknastöðvarinnar við Mývatn
Forstöðumaður Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar
Forstjóri Umhverfisstofnunar
Forstöðumaður Úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála
Framkvæmdastjóri Úrvinnslusjóðs
Skipulagsstjóri ríkisins
Veðurstofustjóri

Utanríkisráðuneyti
Flugvallarstjóri Keflavíkurflugvelli
Framkvæmdastjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands

Viðskiptaráðuneyti
Forstjóri Fjármálaeftirlitsins
Forstjóri Neytendastofu
Forstjóri Samkeppniseftirlitsins
Framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins

Fjármálaráðuneytinu, 23. janúar 2006
F.h.r.
Baldur Guðlaugsson / Gunnar Björnsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum