Hoppa yfir valmynd
29. mars 2006 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurðir 29. mars 2006

Fundargerð

Ár 2006, miðvikudaginn 29. mars, var haldinn fundur í mannanafnanefnd. Fundurinn fór fram í Lögbergi, húsi lagadeildar Háskóla Íslands. Mætt voru Kolbrún Linda Ísleifsdóttir, Baldur Sigurðsson og Ágústa Þorbergsdóttir.

 

Eftirfarandi mál voru tekin fyrir:

 

1.         Mál nr. 20/2006

 

Eiginnafn:                          Bil (kvk.)

 

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Eiginnafnið Bil (kvk.) tekur íslenska eignarfallsendingu (Bilar) og telst hafa áunnið sér hefð í samræmi við 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn, sbr. og ákvæði 2. gr. vinnulagsreglna mannanafnanefndar frá 1. júlí 2004, en nafnið kemur m.a. fram í Snorra-Eddu. Þess skal getið að eiginnöfnin Marsibil og Mábil (kvk.) eru á mannanafna-skrá og eru bæði með eignarfallsendinguna –ar (Marsibilar og Mábilar).

 

Úrskurðarorð:

 

Beiðni um eiginnafnið Bil (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá ásamt eignarfallsmynd þess (Bilar) en þó ekki fyrr en beiðni um skráningu þess (skírnar-skýrsla eða tilkynning um nafngjöf) hefur borist Hagstofu Íslands.

  




2.         Mál nr. 21/2006

 

Eiginnafn:                          Eleanor  (kvk.)

 

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Öll skilyrði 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn þurfa að vera uppfyllt svo að mögulegt sé að samþykkja nýtt eiginnafn og færa það á mannanafnaskrá. Skilyrðin eru þessi: (1) Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. (2) Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. (3) Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. Með almennum ritreglum íslensks máls er vísað til auglýsinga nr. 132/1974 og 261/1977 um íslenska stafsetningu.

 

Túlkun mannanafnanefndar á hugtakinu hefð í 5. og 6. gr. laga nr. 45/1996 um manna-nöfn styðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 1. júlí 2004 og sem eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum:

 

1.  Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju

eftirfarandi skilyrða:

  1. Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum (með Íslendingum er átt við þá íslensku ríkisborgara sem eiga eða hafa átt lögheimili hér á landi);
  2. Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;
  3. Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;
  4. Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910;
  5. Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1910.

2.  Tökunafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur

unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir

í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við

íslenskt málkerfi.

 

Eiginnafnið Eleanor (kvk.) getur ekki talist ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls. Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands bera aðeins tvær konur eiginnafnið Eleanor (fyrra nafn) og er sú eldri fædd árið 1950 og því er ekki hefð fyrir þessum rithætti, sbr. ofangreindar vinnulagsreglur. Gildir það sama þótt skyld nöfn, Elenóra, Eleonora og Elinóra, séu á mannanafnaskrá.

 

Eiginnafnið Eleanor uppfyllir þar af leiðandi ekki öll ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn og því er ekki mögulegt að fallast á það.  Ekki hefur heldur verið sýnt fram á að skilyrði 10. gr. sömu laga séu fyrir hendi, þ.e. að annað foreldri barnsins (úrskurðar-beiðandi) sé eða hafi verið erlendur ríkisborgari.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Eleanor (kvk.) er hafnað.

 

 


3.         Mál nr. 22/2006

 

Eiginnafn:                         Sophia (kvk.)

 

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Eiginnafnið Sophia (kvk.) tekur íslenska eignarfallsendingu (Sophiu) og telst ritháttur þessi hafa áunnið sér hefð í samræmi við 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn, sbr. og ákvæði c-liðar 1. gr. vinnulagsreglna mannanafnanefndar frá 1. júlí 2004.

 

Úrskurðarorð:

 

Beiðni um eiginnafnið Sophia (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá sem ritmynd eiginnafnsins Soffía. 

 

 

 

4.         Mál nr. 23/2006

 

Eiginnafn:                         Jenetta  (kvk.)

 

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Eiginnafnið Jenetta (kvk.) tekur íslenska eignarfallsendingu (Jenettu) og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

 

Beiðni um eiginnafnið Jenetta (kvk.) er samþykkt en nafnið skal þó ekki fært á manna-nafnaskrá fyrr en beiðni um skráningu þess (skírnarskýrsla eða tilkynning um nafngjöf) hefur borist Hagstofu Íslands.

 

 

 

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið.

 

Kolbrún Linda Ísleifsdóttir  (sign)

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum