Hoppa yfir valmynd
26. apríl 2006 Innviðaráðuneytið

Umferðaröryggi á Kjalarnesi

Sturla Böðvarsson samgöngurráðherra svaraði á Alþingi í dag spurningum Birgis Ármannssonar alþingismanns um umferðaröryggi á Kjalarnesi. Spurningarnar og svör ráðherra fara hér á eftir.

Þskj. 996 - 680. mál.

Svar við munnlegri fyrirspurn

Frá Birgi Ármannssyni til samgönguráðherra um umferðaröryggi á Kjalarnesi

1. Hvaða áform eru uppi af hálfu samgönguyfirvalda um vegabætur í þágu umferðaröryggis á Vesturlandsvegi á Kjalarnesi?

2. Eru sérstaklega fyrirhugaðar breytingar á vegtengingu við þéttbýlið á Kjalarnesi?

3. Hvenær má vænta framkvæmda við breytingar af þessu tagi?

Ég vil fyrst þakka háttvirtum fyrirspyrjanda fyrir að vekja máls á þessu mikilvæga máli sem umferðaröryggi á Kjalarnesi er. Umferðaröryggisaðgerðir í nágrenni við Grundahverfi eru aðkallandi verkefni sem ég hef kynnt mér sérstaklega.

Til að setja þetta mál í rétt samhengi er nauðsynlegt að halda nokkrum atriðum til haga sem lúta að legu Vesturlandsvegar um Kjalarnes í tengslum við lagningu Sundabrautar.

Sú staða sem uppi er í skipulagsmálum Reykavíkurborgar og snýr að legu fyrirhugaðrar Sundabrautar er með miklum ólíkindum. Misseri eftir misseri eru samgönguyfirvöld dregin á svari um hvar Sundabrautin megi liggja yfir Kleppsvíkina. Hver afsökunin er nefnd af annarri og nú síðast á fundi í borgarstjórn í gær hélt Dagur B. Eggertsson, formaður skipulagsráðs borgarinnar því fram að málið tefjist vegna þess að ,,enn sé óvissa um fulla fjármögnun verkefnisins”. Þetta er alger firra og formanni skipulagsráðs væri nær að vinna heimavinnuna sína og fylgjast með fréttum, því það eitt ætti að nægja til að hann vissi betur í þessu efni.

Raunin er auðvitað sú að formaðurinn veit betur en kýs að fara með rangt mál til að fela aðgerðaleysi í eigin ranni. Það er leitt til þess að hugsa að hugtakið ,,Dagsatt” fái nýja og miður góða merkingu þessa dagana.

Rétt er að minna á í þessu sambandi að það er formaður skipulagsráðs og oddviti Samfylkingarinnar í Borginni sem er sá eini sem heldur á lofti þeirri skoðun að það eigi að kjósa sérstaklega um legu Sundabrautarinnar. Ekki verður það til að flýta framkvæmdum heldur miklu frekar til að losna við að taka ákvörðun um málið sem kjörnir borgarfulltrúar eru þó kosnir til að gera. Það er hlutverk kjörinna fulltrúa í Reykavíkurborg að taka ákvörðun um þetta mál, það er kominn tími til að þeir geri það.

Þar sem Reykjavíkurborg hefur dregið þessa ákvörðun út í hið óendanlega, þannig að ekki er unnt að hefja verkhönnun, sem er undanfari útboðs, tel ég óhjákvæmilegt að láta kanna það af fullri alvöru hvort ekki sé rétt að hefja framkvæmdir við Sundabraut að norðanverðu.

Með því væri verkið tekið úr þeirri gíslingu sem meirihlutinn í Reykavík heldur því í.

Það sem ég sé fyrir mér að kanna verði er að hefjast handa við framkvæmdir með breikkun vegarins á Kjalarnesi, milli syðri gangamuna Hvalfjarðarganga að þeim stað sem fyrirhugað er að Sundabraut þveri Kollafjörð. Með þessari aðgerð væri umferðaröryggismálum á Kjalarnesi og í nágrenni við Grundahverfi komið í gott horf. Tengingar við hverfið og á milli svæða þess yrðu með besta móti og fyllsta umferðaröryggis yrði gætt.

Verði þetta niðurstaðan mun þessi hluti framkvæmdarinnar koma inn í endurskoðaða samgönguáætlun fyrir árin 2007-2010 og ég tel ekkert eiga að vera því til fyrirstöðu að framkvæmdirnar eigi sér stað á fyrri hluta þess áætlunartímabils.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum