Hoppa yfir valmynd
29. maí 2006 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Karlar til ábyrgðar

Karlar til ábyrgðar
Karlar til ábyrgðar

Félagsmálaráðherra skrifaði í morgun undir samning um framkvæmd verkefnisins Karlar til ábyrgðar.

Um er að ræða eina sérhæfða meðferðartilboðið fyrir karla sem beita ofbeldi á heimilum hér á landi. Reynslan af slíku meðferðarstarfi er góð bæði hér á landi og erlendis en talið er að árlega séu um 1.100 konur beittar ofbeldi af hálfu maka eða fyrrverandi maka.

Sálfræðingar munu annast meðferðarstarfið en markmið verkefnisins er að veita körlum sem beitt hafa heimilisofbeldi meðferð og aðstoð séu þeir reiðubúnir að leita sér hjálpar. Áhersla er lögð á að gerendur komi sjálfviljugir í meðferð og axli sjálfir ábyrgð á ofbeldinu. Meðferðin byggist á einstaklingsviðtölum og getur staðið frá sex mánuðum til tveggja ára.

Karlar til ábyrgðar - frá blaðamannafundiSamhliða meðferðarstarfinu verður starfandi sérstök verkefnisstjórn með þátttöku Jafnréttisstofu, heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis og Samtaka um Kvennaathvarf og fulltrúi Jafnréttisstofu verður verkefnisstjóri. Hlutverk verkefnisstjórnarinnar er m.a. að skilgreina þróun verkefnisins til framtíðar í samráði við meðferðaraðila, fylgjast með daglegri starfsemi og standa fyrir mati á árangri verkefnisins.

Upplýsingar um viðtöl og meðferðir eru veittar í Hjálparsíma Rauða krossins í síma 1717 en einnig má hafa beint samband við sálfræðingana Einar Gylfa Jónsson og Andrés Ragnarsson. Ef þú þekkir einhvern sem hefur beitt eða verið beittur ofbeldi á heimili getur þú gert honum greiða með því að benda á þá aðstoð sem stendur til boða.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum