Hoppa yfir valmynd
19. júní 2006 Innviðaráðuneytið

Farsímasamband boðið út

Í dag verður kynnt á Evrópska efnahagssvæðinu fyrirhugað forval vegna framkvæmda við áframhaldandi uppbyggingu á gsm farsímakerfinu á hringveginum og fimm fjallvegum. Eru þessir vegarkaflar samanlagt um 500 km.

Verkefnið er liður í fjarskiptaáætlun 2005 til 2010 sem samþykkt var á Alþingi 2005 en meðal markmiða hennar er að bæta farsímasamband á þjóðvegakerfinu. Stjórn fjarskiptasjóðs sér um undirbúning verkefnisins.

Um 400 km kafli á hringveginum er án gsm-sambands í dag. Þessir kaflar eru mjög mismunandi langir, allt frá rúmum fjórum km uppí yfir 90 km. Meðal kafla þar sem sambandið verður bætt má nefna Norðurárdalur, Öxnadalsheiði, Möðrudalsöræfi, Jökuldalur, Skriðdalur og Breiðdalur, Hvalnesskriður, Öræfi og Sólheimasandur. Auk þessara kafla á hringveginum verður gsm-sambandið bætt á fimm fjallvegum: Fróðárheiði, Steingrímsfjarðarheiði, Þverárfjalli, Fjarðarheiði og Fagradal. Þessir fjallvegir eru meðal annars valdir út frá slysatíðni og meðalumferð á sólarhring.

Eins og fram hefur komið verður 2,5 milljörðum króna, sem er hluti af söluandvirði Símans, varið til að hrinda fjarskiptaáætluninni í framkvæmd og er gsm-útboðið fyrsta verkefnið sem fjarskiptasjóður ýtir úr vör. Fjarskiptaáætlunin gerir ráð fyrir að gsm-farsímanetið verði þétt þar sem það gegni mikilvægu hlutverki sem öryggistæki fyrir almenning ekki síst á fáförnum köflum á þjóðvegum landsins. Var því lögð áhersla á að þetta verkefni kæmist sem fyrst í framkvæmd. Í næsta áfanga verður hugað að því að bæta sambandið víðar á stofnvegum landsins og við helstu ferðamannastaði.

Eins og fyrr segir verður forval auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu og þeir sem áhuga hafa á þátttöku skulu skila tilkynningu sinni til Ríkiskaupa. Þar sem gera verður ráð fyrir rúmum tíma fyrir allt útboðsferlið er áætlað að verksamningur verði undirritaður í byrjun næsta árs. Meðfylgjandi kort (pdf) sýnir svæðin þar sem boðin verða út.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum