Hoppa yfir valmynd
11. október 2006 Dómsmálaráðuneytið

Auglýsing um kosningarrétt íslenskra ríkisborgara sem búsettir hafa verið erlendis lengur en 8 ár.

Íslenskir ríkisborgarar sem flust hafa af landi brott og sest að erlendis hafa kosningarrétt hér á landi í átta ár frá því þeir fluttu lögheimili sitt, talið frá 1. desember næstum fyrir kjördag. Að þessum átta árum liðnum falla þeir af kjörskrá nema sérstaklega sé sótt um að fá að halda kosningarrétti.

Samkvæmt lögum um kosningar til Alþingis hafa íslenskir ríkisborgarar sem flust hafa af landi brott og sest að erlendis kosningarrétt hér á landi í átta ár frá því þeir fluttu lögheimili sitt, talið frá 1. desember næstum fyrir kjördag. Þeir eru því sjálfkrafa á kjörskrá þann tíma. Að þessum átta árum liðnum falla þeir af kjörskrá nema sérstaklega sé sótt um að fá að halda kosningarrétti. Því þurfa þeir, sem vilja vera á kjörskrá, en fluttu af landi brott fyrir 1. desember 1998 og hafa verið búsettir erlendis síðan, að senda umsókn til Þjóðskrár fyrir 1. desember 2006, til þess að halda kosningarrétti. Kosningarrétturinn gildir til 1. desember 2010. Kosningarréttinn þarf að endurnýja með nýrri umsókn eftir 1. desember ári áður en hann fellur niður.

Umsókn skal senda Þjóðskrá en eyðublöð fást í sendiráðum Íslands erlendis, sendiræðisskrifstofum, skrifstofum kjörræðismanna og hjá fastanefndum við alþjóðastofnanir. Einnig er hægt að fá eyðublöðin á afgreiðslu Þjóðskrár og á heimasíðu hennar: http://www.thjodskra.is/media/innanrikisraduneyti-media/media/eydublod/kjorskra.pdf. Umsækjandi verður sjálfur að undirrita umsókn sína.

Einungis þeir sem einhvern tíma hafa átt lögheimili á Íslandi geta haft kosningarrétt hér á landi. Kosningarréttur féll niður ef íslenskur ríkisborgari gerðist ríkisborgari í öðru ríki fyrir 1. júlí 2003. Kosningarréttur miðast við 18 ára aldur. Reglur þessar gilda með sama hætti um kjör forseta Íslands en ekki um kosningar til sveitarstjórnar. Sé umsókn fullnægjandi verður umsækjandi tekinn á kjörskrá í því sveitarfélagi þar sem hann síðast átti lögheimili á Íslandi samkvæmt þjóðskrá.

Dóms- og kirkjumálaráðuneytið,

3. október 2006.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum