Hoppa yfir valmynd
29. desember 2006 Dómsmálaráðuneytið

Skipun héraðsdómara við Héraðsdóm Reykjavíkur og sýslumanns á Siglufirði

Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra hefur skipað Ingimund Einarsson, varalögreglustjóra í Reykjavík, til þess að gegna stöðu héraðsdómara við Héraðsdóm Reykjavíkur.

Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra hefur skipað Ingimund Einarsson, varalögreglustjóra í Reykjavík, til þess að gegna stöðu héraðsdómara við Héraðsdóm Reykjavíkur frá og með 1. janúar 2007.

Jafnframt hefur hann skipað Ásdísi Ármannsdóttur, héraðsdómslögmann á Sauðárkróki, til þess að vera sýslumaður á Siglufirði frá og með 1. febrúar 2007.

Reykjavík 29. desember 2006



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum