Hoppa yfir valmynd
29. janúar 2007 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Listi yfir forstöðumenn 29. janúar 2007

Hér er listi yfir forstöðumenn skv. 2. mgr. 22. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996 með síðari breytingum.

Í 1. mgr. 22. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996 með síðari breytingum eru taldir upp í 13 töluliðum þeir sem teljast embættismenn samkvæmt lögunum. Í 2. mgr. segir að fjármálaráðherra skeri úr því hvaða starfsmenn falli undir 13. tölulið þessarar greinar, þ.e. forstöðumenn ríkisstofnana og ríkisfyrirtækja sem ekki eru taldir sérstaklega upp í 1. - 12. tölulið. Jafnframt segir að ráðherra skuli fyrir 1. febrúar ár hvert birta í Lögbirtingablaði lista yfir þá starfsmenn.

Listinn birtur fyrir 1. febrúar 2007 er svohljóðandi:

Forsætisráðuneyti

Bankastjórar Seðlabanka Íslands
Forstöðumaður Þjóðmenningarhúss

Dóms- og kirkjumálaráðuneyti

Forstjóri Landhelgisgæslu Íslands
Forstjóri Persónuverndar

Félagsmálaráðuneyti

Forstjóri Barnaverndarstofu
Forstjóri Vinnueftirlits ríkisins
Forstjóri Vinnumálastofnunar
Forstöðumaður Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins
Framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs
Framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu
Framkvæmdastjóri svæðisskrifstofu málefna fatlaðra, Austurlandi
Framkvæmdastjóri svæðisskrifstofu málefna fatlaðra, Norðurlandi eystra
Framkvæmdastjóri svæðisskrifstofu málefna fatlaðra, Norðurlandi vestra
Framkvæmdastjóri svæðisskrifstofu málefna fatlaðra, Reykjanesi
Framkvæmdastjóri svæðisskrifstofu málefna fatlaðra, Reykjavík
Framkvæmdastjóri svæðisskrifstofu málefna fatlaðra, Suðurlandi
Framkvæmdastjóri svæðisskrifstofu málefna fatlaðra, Vestfjörðum
Framkvæmdastjóri svæðisskrifstofu málefna fatlaðra, Vesturlandi

Fjármálaráðuneyti

Fjársýslustjóri
Forstjóri Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins
Forstjóri Fasteignamats ríkisins
Forstjóri Framkvæmdasýslu ríkisins
Forstjóri Lánasýslu ríkisins
Forstjóri Ríkiskaupa
Forstöðumaður Fasteigna ríkissjóðs

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti

Forstjóri Landspítala - háskólasjúkrahúss
Forstjóri Lyfjastofnunar
Forstjóri Lýðheilsustöðvar
Forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins
Forstöðumaður Geislavarna ríkisins
Framkvæmdastjóri Fjórðungssjúkrahússins Akureyri
Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands
Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands
Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga
Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunarinnar Akranesi
Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunarinnar Blönduósi
Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunarinnar Bolungarvík
Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunarinnar Hólmavík
Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunarinnar Hvammstanga
Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunarinnar Ísafjarðarbæ
Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunarinnar Patreksfirði
Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunarinnar Sauðárkróki
Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunarinnar Siglufirði
Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunarinnar Suðurnesjum
Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunarinnar Vestmannaeyjum
Framkvæmdastjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
Framkvæmdastjóri Heilsugæslustöðvarinnar Borgarnesi
Framkvæmdastjóri Heilsugæslustöðvarinnar Dalvík
Framkvæmdastjóri Heilsugæslustöðvarinnar Grundarfirði
Framkvæmdastjóri Heilsugæslustöðvarinnar Ólafsvík
Framkvæmdastjóri Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands
Framkvæmdastjóri St. Jósefsspítala, Sólvangs, Hafnarfirði
Landlæknir
Yfirlæknir Þjónustu- og endurhæfingarstöðvar sjónskertra

Iðnaðarráðuneyti

Forstjóri Byggðastofnunar
Forstjóri Einkaleyfastofunnar
Forstjóri Iðntæknistofnunar Íslands
Forstjóri Íslenskra orkurannsókna
Forstjóri Rannsóknastofnunar byggingariðnaðarins
Orkumálastjóri

Landbúnaðarráðuneyti

Forstjóri Veiðimálastofnunar
Forstöðumaður Hagþjónustu landbúnaðarins
Landgræðslustjóri
Rektor Hólaskóla – Háskólans á Hólum
Rektor Landbúnaðarháskóla Íslands
Skógræktarstjóri
Skólameistari Hólaskóla

Menntamálaráðuneyti

Forstjóri Námsgagnastofnunar
Forstöðumaður Blindrabókasafns Íslands
Forstöðumaður Fornleifaverndar ríkisins
Forstöðumaður Húsfriðunarnefndar
Forstöðumaður Listasafns Einars Jónssonar
Forstöðumaður Listasafns Íslands
Forstöðumaður Námsmatsstofnunar
Forstöðumaður Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra
Forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Forstöðumaður Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum
Forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar Íslands
Forstöðumaður Kvikmyndasafns Íslands
Forstöðumaður Rannsóknamiðstöðvar Íslands
Framkvæmdastjóri Lánasjóðs íslenskra námsmanna
Landsbókavörður
Listdansstjóri Íslenska dansflokksins
Rektor Háskóla Íslands
Rektor Háskólans á Akureyri
Rektor Kennaraháskóla Íslands
Skólameistari Borgarholtsskóla
Skólameistari Fjölbrautaskólans við Ármúla
Skólameistari Fjölbrautaskólans í Breiðholti
Skólameistari Fjölbrautaskólans í Garðabæ
Skólameistari Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra
Skólameistari Fjölbrautarskóla Snæfellinga
Skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurlands
Skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja
Skólameistari Fjölbrautaskóla Vesturlands
Skólameistari Flensborgarskóla
Skólameistari Framhaldsskólans á Húsavík
Skólameistari Framhaldsskólans á Laugum
Skólameistari Framhaldsskólans í A-Skaftafellssýslu
Skólameistari Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum
Skólameistari Iðnskólans í Hafnarfirði
Skólameistari Iðnskólans í Reykjavík
Skólameistari Kvennaskólans í Reykjavík
Skólameistari Menntaskólans að Laugarvatni
Skólameistari Menntaskólans á Akureyri
Skólameistari Menntaskólans á Egilsstöðum
Skólameistari Menntaskólans á Ísafirði
Skólameistari Menntaskólans í Kópavogi
Skólameistari Menntaskólans í Reykjavík
Skólameistari Menntaskólans við Hamrahlíð
Skólameistari Menntaskólans við Sund
Skólameistari Verkmenntaskóla Austurlands
Skólameistari Verkmenntaskólans á Akureyri
Útvarpsstjóri
Þjóðleikhússtjóri
Þjóðminjavörður
Þjóðskjalavörður

Samgönguráðuneyti

Ferðamálastjóri
Flugmálastjóri
Forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar
Forstöðumaður rannsóknarnefndar flugslysa
Forstöðumaður rannsóknarnefndar sjóslysa
Forstöðumaður rannsóknarnefndar umferðarslysa
Framkvæmdastjóri Umferðarstofu
Siglingamálastjóri
Vegamálastjóri

Sjávarútvegsráðuneyti

Fiskistofustjóri
Forstjóri Hafrannsóknastofnunarinnar
Forstöðumaður Skrifstofu rannsóknastofnana atvinnuveganna
Forstöðumaður Verðlagsstofu skiptaverðs

Umhverfisráðuneyti

Brunamálastjóri
Forstjóri Landmælinga Íslands
Forstjóri Náttúrufræðistofnunar Íslands
Forstjóri Umhverfisstofnunar
Forstöðumaður Náttúrurannsóknastöðvarinnar við Mývatn
Forstöðumaður Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar
Forstöðumaður Úrskurðarnefndar skipulags- og byggingamála
Framkvæmdastjóri Úrvinnslusjóðs
Skipulagsstjóri ríkisins
Veðurstofustjóri

Utanríkisráðuneyti

Flugvallarstjóri Keflavíkurflugvelli
Framkvæmdastjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands

Viðskiptaráðuneyti

Forstjóri Fjármálaeftirlitsins
Forstjóri Neytendastofu
Forstjóri Samkeppniseftirlitsins
Framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins
Talsmaður neytenda

Fjármálaráðuneytinu, 22. janúar 2007

F.h.r.

 

                      Baldur Guðlaugsson       /       Guðmundur H. Guðmundsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum