Hoppa yfir valmynd
14. febrúar 2007 Innviðaráðuneytið

Nýtum tímann - Notum tæknina Dagskrá UT-ráðstefnunnar 2007

Í tilefni UT-dagsins standa forsætis- og fjármálaráðuneyti fyrir ráðstefnu undir yfirskriftinni Nýtum tímann – Notum tæknina í Salnum, Kópavogi, 8. mars nk. kl. 13:00-16:30. Kynnt verða nokkur af stærstu verkefnum ríkis og sveitarfélaga í rafrænni stjórnsýslu.
Ráðstefnan er öllum opin meðan húsrúm leyfir en tilkynna þarf skráningu á netfangið [email protected] eða í síma 511 1230 fyrir hádegi 5. mars.
Ráðstefnugjald er kr. 7.900.

Dagskrá í Salnum í Kópavogi 8. mars 2007

12:45 Skráning og afhending ráðstefnugagna

13:10 Ávarp: Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra

13:30 Þegar þér hentar...Halla Björg Baldursdóttir, verkefnisstjóri í rafrænni stjórnsýslu, forsætisráðuneyti

13:50 Ísland.is vísar þér veginn
Bolli Þór Bollason ráðuneytisstjóri, forsætisráðuneyti
Fjóla Agnarsdóttir, verkefnisstjóri Ísland.is, forsætisráðuneyti

14:10 Rafræn stjórnsýsla í Reykjanesbæ
Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæ

14:25 Borgin í einum smelli – sjálfsafgreiðsla á vef Reykjavíkurborgar
Regína Ásvaldsdóttir, sviðsstjóri þjónustu- og rekstrarsviðs Reykjavíkurborgar

14:40 Kaffiveitingar

15:00 Alla leið: Lykill að rafrænu Íslandi
 Haraldur Sverrisson skrifstofustjóri, fjármálaráðuneyti
 Sæmundur Sæmundsson, stjórnarformaður Auðkennis

15:20 Rafræn skilríki í hnotskurn – hagnýt dæmi um notkun
 Haraldur Bjarnason sérfræðingur, fjármálaráðuneyti

15:50 Innkaup án inngripa - rafrænir reikningar og stefna ríkisins í rafrænum innkaupum
 Stefán Jón Friðriksson sérfræðingur, fjármálaráðuneyti
 Bergþór Skúlason tölvunarfræðingur, Fjársýslu ríkisins

16:10 Umræður og lokaorð

16:30 Ráðstefnuslit

17:00 Tækni og vit 2007
 Ráðstefnugestum er boðið á formlega opnun sýningarinnar Tækni og vit 2007 í Fífunni, Kópavogi.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum