Hoppa yfir valmynd
19. febrúar 2007 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurður 19. febrúar 2007

FUNDARGERÐ

Ár 2007, mánudaginn 19. febrúar, var haldinn símafundur í mannanafnanefnd. Mætt voru Ágústa Þorbergsdóttir, Baldur Sigurðsson og Kolbrún Linda Ísleifsdóttir. Tekið var fyrir:

1.         Mál nr. 8/2007.                    Eiginnafn:        Bergheiður  (kvk.)

 

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Eiginnafnið Bergheiður (kvk.) tekur beygingu í eignarfalli, Bergheiðar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Bergheiður (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

 

 

 

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið.

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum