Hoppa yfir valmynd
6. mars 2007 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurður 6. mars 2007

FUNDARGERÐ

Ár 2007, þriðjudaginn 6. mars, var haldinn símafundur í mannanafnanefnd. Mætt voru Ágústa Þorbergsdóttir, Baldur Sigurðsson og Kolbrún Linda Ísleifsdóttir. Neðangreind mál voru tekin fyrir:

 

3.         Mál nr.   10/2007        Eiginnafn:        Gídeon  (kk.)

 

 

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Eiginnafnið Gídeon (kk.) tekur beygingu í eignarfalli, Gídeons, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.  Nafnið beygist þannig í aukaföllum: Gídeon - Gídeon - Gídeon - Gídeons.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Gídeon (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

  

  

 

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið.

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum