Hoppa yfir valmynd
19. apríl 2007 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Ráðstefna í tilefni af Ári jafnra tækifæra 2007

Árið 2007 er Evrópuár jafnra tækifæra
Árið 2007 er Evrópuár jafnra tækifæra

Evrópuárið 2007, „Ár jafnra tækifæra fyrir alla“, á að vekja athygli almennings á að allir eigi rétt á jöfnum tækifærum án tillits til uppruna, kyns, trúar, lífsskoðunar, kynþáttar, fötlunar, kynhneigðar og aldurs. Í tilefni af því efnir félagsmálaráðuneytið til ráðstefnu í Iðnó miðvikudaginn 25. apríl næstkomandi klukkan 14 til 18 undir yfirskriftinni styrkurinn í fjölbreytni.

Fjölbreytileiki mannfólksins í Evrópu er dýrmæt auðlind en vannýtt sökum fordóma og staðalmynda. Á árinu verður einblínt á kosti fjölbreytileikans og unnið gegn hvers konar mismunun.

Ísland tekur fullan þátt í verkefninu. Á ráðstefnunni verða fyrirlestrar um áhrif jafnréttis og mismununar á samfélagið frá ýmsum sjónarhornum. Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra setur verkefnið hér á landi og Beate Gangås, umboðsmaður jafnréttis og mismununar í Noregi, flytur erindi um hlutverk embættisins. Ýmis verkefni tengd árinu verða kynnt og sýnd valin brot úr leikritinu Best í heimi.

Ráðstefnan er öllum opin og aðgangur ókeypis.

Skjal fyrir Acrobat ReaderDagskrá ráðstefnu um Ár jafnra tækifæra 2007



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum