Hoppa yfir valmynd
13. júní 2007 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Alþingi samþykkir aðgerðaáætlun til að styrkja stöðu barna og ungmenna

Tillaga Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra til þingsályktunar um aðgerðaáætlun til að styrkja stöðu barna og ungmenna fyrir árin 2007–2011 var samþykkt óbreytt á Alþingi með 47 samhljóða atkvæðum.

Skipaður verður samráðshópur fulltrúa ráðherra félagsmála, heilbrigðis– og tryggingamála, dóms– og kirkjumála, fjármála og menntamála til að stuðla að samræmingu og eftirfylgni aðgerðaáætlunarinnar undir forystu félagsmálaráðuneytisins.

„Það er mikið ánægjuefni að fyrsta þingmál mitt sem félagsmálaráðherra í nýrri ríkisstjórn hafi náð fram að ganga, aðeins þremur vikum eftir að ný ríkisstjórn var mynduð“, segir Jóhnna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra. „Mér er ofarlega í huga þakklæti til Alþingis fyrir þá breiðu samstöðu sem myndast hefur um að afgreiða þessa ályktun fljótt og vel á stuttu sumarþingi og fyrir þann góða vilja sem ég finn hjá ríkisstjórninni að hrinda þessari aðgerð í framkvæmd á kjörtímabilinu.“

Meginatriði aðgerðaáætlunar til að styrkja stöðu barna og ungmenna verða að sögn félagsmálaráðherra að bæta afkomu barnafjölskyldna, meðal annars með hækkun barnabóta tekjulágra fjölskyldna, lengingu fæðingarorlofs, stuðningi við foreldra í uppeldisstarfi, eflingu forvarna og aðgerðum gegn vímuefnaneyslu. Einnig verður framfylgt aðgerðum í þágu barna og ungmenna með þroskafrávik, hegðunarerfiðleika og geðraskanir, langveikra barna og barna sem eiga við vímefnavanda að etja. Sömuleiðis verður ráðist í aðgerðir til að vernda börn og ungmenni gegn kynferðisbrotum og til að styrkja stöðu barna innflytjenda.

„Ég fagna líka mjög því sem fram kemur í nefndaráliti félagsmálanefndar þar sem hvatt er til þess að húsnæðisvandi fátækra barnafjölskyldna verði skoðaður sérstaklega í aðgerðum til að sporna við fátækt“, segir Jóhanna Sigurðardóttir. „Sérstaklega á að huga að stöðu einstæðra foreldra og meðlagsgreiðenda með aðgerðum til að vinna gegn fátækt meðal barnafjölskyldna.“

Skjal fyrir Acrobat ReaderTillaga til þingsályktunar um aðgerðaáætlun til fjögurra ára til að styrkja stöðu barna og ungmenna (pdf 222kb)

Tenging frá vef ráðuneytisinsNefndarálit frá félags– og tryggingamálanefnd Alþingis



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum