Hoppa yfir valmynd
6. september 2007 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurðir 6. september 2007

FUNDARGERÐ

Ár 2007, fimmtudaginn 6. september, var haldinn fundur í mannanafnanefnd. Fundurinn fór fram að Neshaga 16, Reykjavík.  Mætt voru Ágústa Þorbergsdóttir, Baldur Sigurðsson og Kolbrún Linda Ísleifsdóttir. Neðangreind mál voru tekin fyrir:

 

1.         Mál nr.  27/2007         Eiginnafn:        Mohamed  (kk.)

Mál þetta, sem móttekið var 25. maí 2007, var tekið fyrir á fundum mannanafnanefndar 6. júní og 9. júlí 2007 en afgreiðslu þess þá frestað til frekari skoðunar og gagnaöflunar. Í málinu var sótt um samþykki nefndarinnar fyrir eiginnafninu Mohamed (kk.) vegna sonar úrskurðarbeiðenda, fædds[...]

 

Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá hefur nafn drengsins nú verið skráð sem [...]að ósk forsjárforeldris. Af þeim sökum verður að telja að úrskurðarbeiðendur hafi fallið frá beiðni um samþykki fyrir eiginnafninu Mohamed (kk.) og er málið því fellt niður hjá mannanafnanefnd.

  

 

 

2.         Mál nr.  31/2007         Eiginnafn:        Amilía  (kvk.)

Mál þetta, sem móttekið var 15. júní 2007, var tekið fyrir á fundi mannanafnanefndar 9. júlí 2007 en afgreiðslu þess þá frestað til frekari skoðunar og gagnaöflunar. Í málinu var sótt um samþykki nefndarinnar fyrir eiginnafninu Amilía (kvk.) vegna dóttur úrskurðarbeiðenda, fæddrar 29. mars 2007.

 

Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá hefur nafn stúlkunnar nú verið skráð sem [...] að ósk forsjárforeldris. Af þeim sökum verður að telja að úrskurðarbeiðendur hafi fallið frá beiðni sinni um samþykki fyrir eiginnafninu Amilía (kvk.) og er málið því fellt niður hjá mannanafnanefnd.

  

 

 

3.         Mál nr.  45/2007         Eiginnafn:        Christín  (kvk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Öll skilyrði 1., 2. og 3. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn þurfa að vera uppfyllt svo að mögulegt sé að samþykkja nýtt eiginnafn og færa það á mannanafnaskrá. Skilyrðin eru þessi:

1.     Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. (Með almennum ritreglum íslensks máls er vísað til auglýsinga nr. 132/1974 og 261/1977 um íslenska stafsetningu).

2.     Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn.

3.     Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

 

Þegar svo háttar að eiginnafn uppfyllir ekki þau skilyrði, sem tilgreind eru í 1. og 3. málslið 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996, þ.e. tekur ekki íslenska eignarfallsendingu og/eða telst ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls, er unnt að samþykkja nafnið á mannanafnaskrá ef það telst hafa áunnið sér hefð. Hins vegar heimila mannanafnalög ekki að unnt sé að samþykkja nýtt eiginnafn á mannanafnaskrá á grundvelli hefðar ef nafnið brýtur í bág við íslenskt málkerfi, sbr. 2. málslið 1. mgr. 5. gr. sömu laga.

 

Hugtakið hefð í mannanafnalögum varðar einkum erlend nöfn frá síðari öldum sem ekki hafa aðlagast almennum ritreglum íslensks máls. Þau eru stundum nefnd ung tökunöfn og koma fyrst fram í íslensku máli árið 1703 þegar manntal á Íslandi var tekið fyrsta sinni. Túlkun mannanafnanefndar á hugtakinu hefð í 5. og 6. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn styðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 14. nóvember 2006 og sem eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum og eldri vinnulagsreglum:

1.   Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:

a.   Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;

b.   Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;

c.   Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;

d.   Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910;

e.   Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1910.

2.   Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.

3.   Tökunafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningar-helgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

 

Eiginnafnið Christín (kvk.) brýtur í bág við íslenskt málkerfi og getur ekki talist ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls þar sem bókstafurinn ‘c’ er ekki í íslensku stafrófi, sbr. Stafsetningarorðabókina 2006, bls. 675. Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá er engin kona skráð með eiginnafnið Christín. Því er ekki hefð fyrir þessum rithætti, sbr. ofangreindar vinnulagsreglur. Eiginnafnið Christín uppfyllir þar af leiðandi ekki öll ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn og því er ekki mögulegt að fallast á það.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið og ritháttinn Christín (kvk.) er hafnað.

 

 

 

4.         Mál nr.  46/2007         Eiginnafn:        Ellín  (kvk.)

 Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Eiginnafnið Ellín (kvk.) tekur beygingu í eignarfalli, Ellínar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1995 um mannanöfn. Nafnið beygist þannig í aukaföllum: Ellín – Ellínu – Ellínu – Ellínar.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Ellín (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

 

 

5.         Mál nr.  47/2007         Eiginnafn:        Vár  (kvk.) 

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Eiginnafnið Vár (kvk.) tekur beygingu í eignarfalli, Várar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1995 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Vár (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá ásamt eignarfallsmynd þess, Várar.

 

 

 

6.         Mál nr.  48/2007         Eiginnafn:        Guja  (kvk.) 

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Eiginnafnið Guja (kvk.) tekur beygingu í eignarfalli, Guju, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1995 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Guja (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

 

 

7.         Mál nr.  49/2007         Eiginnafn:        Júlírós  (kvk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Eiginnafnið Júlírós (kvk.) tekur beygingu í eignarfalli, Júlírósar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1995 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Júlírós (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

  

 

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið.

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum