Hoppa yfir valmynd
1. nóvember 2007 Innviðaráðuneytið

Breyting fyrirhuguð á reglugerð um gerð og búnað ökutækja

Drög að breytingum á reglugerð um gerð og búnað ökutækja nr. 822/2004 eru nú til umsagnar á vef samgönguráðuneytisins. Unnt er að skila umsögnum til ráðuneytisins til 7. nóvember næstkomandi.

Helsta breytingin á reglugerðinni er að en nú verður í fyrsta sinn heimilt að sérsmíða bifreiðir hér á landi en hagsmunaaðilar hafa barist fyrir þessu máli í langan tíma.

Aðrar breytingar varða ma. mengunar, útblástursmörk og hljóðstyrk frá ökutækjum. Í 7. grein kemur m.a.fram að mengunarstaðlarnir EURO 5 taka gildi hér á landi árið 2009. Í 8. grein eru settar inn að nýju kröfur um árekstravarnir framan á bifreiðar en gildistöku þessa ákvæðis var frestað um eitt ár. Í stað þess að grindur séu bannaðar er vísað til efnis tilskipana um þær kröfur sem gerðar eru.

Umsagnarfrestur um reglugerðardrögin er til 7. nóvember og skulu umsagnir berast á netfang samgönguráðuneytisins [email protected].

Drög reglugerðarinnar má sjá hér.

Greinargerð um breytingarnar er að finna hér.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum