Hoppa yfir valmynd
13. mars 2008 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Ný lög um bætt kjör aldraðra og öryrkja samþykkt á Alþingi í dag

Í dag voru samþykkt á Alþingi ný lög um breytingu á lögum um almannatryggingar og lögum um málefni aldraðra. Hér er um að ræða fyrsta frumvarp félags- og tryggingamálaráðherra á þessu sviði en málefni aldraðra og almannatryggingar fluttust frá heilbrigðisráðuneyti til félags- og tryggingamálaráðuneytisins um síðustu áramót.

„Með frumvarpinu eru stigin afar mikilvæg skref sem munu bæta stöðu fjölda einstaklinga og fjölskyldna þeirra“, sagði Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, þegar lögin höfðu verið samþykkt í dag. Ég legg hins vegar áherslu á að hér er um að ræða skref á lengri leið. Gert var ráð fyrir í greinargerð með frumvarpinu að lagðar yrðu fram tillögur sem tryggðu örorkulífeyrisþegum sama frítekjumark og ellilífeyrisþegum eða ígildi þess. Gengið er út frá því að tillögur berist frá örorkumatsnefnd forsætisráðherra nú á vorþinginu þannig að hægt verði að afgreiða þá lagasetningu fyrir gildistöku 1. júlí næstkomandi. Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um aðgerðir til að bæta kjör aldraðra og öryrkja er jafnframt kveðið á um að ríkissjóður tryggi ellilífeyrisþegum lífeyri að lágmarki 25 þúsund krónur á mánuði frá lífeyrissjóði eða sambærilega réttarbót með öðrum hætti fyrir 1. júlí næstkomandi. Mikilvægt er að vinnu á vegum fjármálaráðuneytisins við útfærslu á því verði hraðað svo bæta megi stöðu tekjulægstu hópa ellilífeyrisþega í landinu.“

Lagabreytingarnar eru byggðar á stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 23. maí 2007 og byggjast á niðurstöðum verkefnisstjórnar félagsmálaráðherra frá 30. nóvember 2007 og yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 5. desember síðastliðinn. Breytingarnar munu taka gildi í þremur áföngum. Helstu nýmæli í lögunum eru eftirfarandi:

  • Skerðing bóta vegna tekna maka verður að fullu afnumin frá og með 1. apríl.
  • Sett verður 90.000 króna frítekjumark á fjármagnstekjur elli- og örorkulífeyrisþega frá 1. apríl, meðal annars í þeim tilgangi að draga úr ofgreiðslum bóta.
  • Vasapeningar til einstaklinga á dvalar- og hjúkrunarheimilum munu hækka frá 1. apríl 2008.
  • Skerðingarhlutfall ellilífeyris verður lækkað úr 30% í 25% frá 1. apríl og frítekjumark hækkað frá sama tíma.
  • Frítekjumark vegna atvinnutekna ellilífeyrisþega 67–70 ára verður hækkað í 100.000 krónur á mánuði frá 1. júlí.
  • Sett verður 300.000 króna frítekjumark á lífeyrissjóðstekjur örorkulífeyrisþega frá 1. júlí.
  • Aldurstengd örorkuuppbót hækkar frá 1. júlí.
  • Loks verður skerðing lífeyrisgreiðslna vegna innlausnar séreignarsparnaðar afnumin frá og með 1. janúar 2009.

Verkefnisstjórn félags- og tryggingamálaráðherra mun áfram vinna að endurskoðun og einföldun almannatryggingakerfisins og hefur henni verið falið að skila ráðherra heildstæðum tillögum þar að lútandi fyrir 1. nóvember 2008.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum