Hoppa yfir valmynd
4. júní 2008 Matvælaráðuneytið

Auglýsing tollkvóta vegna innflutnings á smjöri og ostum

Með vísan til 65. gr. og 65. gr. A laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum og með vísan til reglugerðar, dags. 3. júní 2008, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir innflutning á smjöri og ostum, fyrir tímabilið 1. júlí 2008 til 30. júní 2009:

Tollskrárnr:

Vara

Tímabil

Vörumagn

Verðtollur

Magntollur

 

 

 

kg.

%

kr./kg

a)

 

 

 

 

 

0405.xxxx

Smjör og önnur fita

01.07.08 - 30.06.09

53.000

0

244

 

 

 

 

 

 

b)

Ostur og ystingur:

 

119.000

 

 

0406.1009

Annað (nýr ostur, mysuostur o.fl.)

01.07.08 - 30.06.09

 

0

174

0406.2000

Hvers konar rifinn eða mulinn ostur

01.07.08 - 30.06.09

 

0

174

0406.3000

Fullunninn ostur, órifinn eða ómulinn

01.07.08 - 30.06.09

 

0

130

0406.4000

Gráðostur

01.07.08 - 30.06.09

 

0

200

0406.9000

Annar ostur

01.07.08 - 30.06.09

 

0

195

Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði 10. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, ásamt reglugerð nr. 509/2004, um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.
Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur hverju sinni, skal leita tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar.  Tilboð skulu ráða úthlutun. Úthlutun er ekki framseljanleg.

Skriflegar umsóknir skulu berast til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins, Skúlagötu 4, 150 Reykjavík, fyrir kl. 15:00 fimmtudaginn 12. júní n.k.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 4. júní 2008.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum