Hoppa yfir valmynd
4. júní 2008 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurður 4. júní 2008

FUNDARGERÐ

Ár 2008, miðvikudaginn 4. júní, var haldinn símafundur í mannanafnanefnd. Viðstödd voru Ágústa Þorbergsdóttir, Baldur Sigurðsson og Kolbrún Linda Ísleifsdóttir. Neðangreint mál var tekið fyrir:

 

 1.         Mál nr. 36/2008          Eiginnafn:        Vetrarrós  (kvk.) 

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Vetrarrós (kvk.) tekur beygingu í eignarfalli og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Nafnið fallbeygist þannig: Vetrarrós - um Vetrarrós - frá Vetrarrós - til Vetrarrósar.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Vetrarrós (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

 

 

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið.

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum