Hoppa yfir valmynd
12. júní 2008 Innviðaráðuneytið

Öll tilboð í Landeyjahöfn undir kostnaðaráætlun

Fjögur tilboð bárust í gerð Landeyjahafnar og Bakkafjöruvegar og voru þau öll undir kostnaðaráætlun. Tilboðin voru opnuð hjá Siglingastofnun Íslands í dag og verða þau metin nánar á næstu tveimur til þremur vikum.

Tilboð opnuð í Landeyjahöfn og vegagerð.
Tilboð opnuð í Landeyjahöfn og vegagerð.

Kostnaðaráætlun Siglingastofnunar hljóðaði uppá rúmlega 3,1 milljarð króna. Tilboðin voru svohljóðandi:

Suðurverk - 1.867.664.916 kr.

Klæðning - 2.090.000.000 kr.

Ístak - 2.489.721.965 kr. og frávikstilboð 2.289.721.956 kr.

KNH - 2.774.752.100 kr.

Verkið snýst um gerð tveggja um 700 metra langra hafnargarða Landeyjahafnar, gerð 11,8 km Bakkafjöruvegar (254) frá Hringvegi (1) að Landeyjahöfn, byggingu 20 m langrar brúar á Ála, rekstur 120 m stálþils, gerð vegtengingar frá Bakkafjöruvegi að Bakkaflugvelli og gerð 3,9 km sjóvarnar- og varnargarða í Bakkafjöru.

Gerð varnargarða við Ála og Markarfljót skal lokið 1. nóvember 2008. Gerð brúar á Ála skal lokið 1. maí 2009. Uppmokstri úr hafnarkví skal lokið 1. júlí 2009. Fyrir 1. október 2009 skulu brimvarnargarðar komnir í fulla lengd.

Verkinu skal að fullu lokið þann 1. júlí 2010.

Því má bæta við að samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnarinnar hefur Siglingastofnun þegar auglýst smíði nýrrar Vestmannaeyjaferju á Evrópska efnahagssvæðinu í eiginframkvæmd. Hefur auglýsingin þegar birst þar og verður birt hérlendis um helgina. Tilboð verða opnuð 29. júlí.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum