Hoppa yfir valmynd
31. júlí 2008 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurðir 31. júlí 2008

FUNDARGERÐ

Ár 2008, fimmtudaginn 31. júlí, var haldinn fundur í mannanafnanefnd. Fundurinn fór fram að Steinagerði 3, Reykjavík. Mætt voru Ágústa Þorbergsdóttir, Baldur Sigurðsson og Kolbrún Linda Ísleifsdóttir. Neðangreind mál voru tekin fyrir:

 

 

3.         Mál nr. 47/2008          Eiginnafn:        Skugga  (kvk.)

 

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Eiginnafnið Skugga (kvk.) tekur beygingu í eignarfalli og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Skugga (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

 

4.         Mál nr. 48/2008          Eiginnafn:        Eiðar  (kk.)

  

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Eiginnafnið Eiðar (kk.) tekur beygingu í eignarfalli og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Nafnið fallbeygist þannig: Eiðar – um Eiðar – frá Eiðari – til Eiðars.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Eiðar (kk.) er samþykkt en nafnið skal ekki fært á mannanafnaskrá fyrr en skráning þess hefur verið framkvæmd hjá Þjóðskrá.

 

 



- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum