Hoppa yfir valmynd
20. október 2008 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Styrkir til háskólanáms og rannsóknarstarfa í Þýskalandi 2009-2010

Menntamálaráðuneytinu hefur borist tilkynning um að boðnir séu fram eftirtaldir styrkir handa Íslendingum til náms og rannsóknarstarfa í Þýskalandi á námsárinu 2008-2009

Menntamálaráðuneytinu hefur borist tilkynning um að boðnir séu fram eftirtaldir styrkir handa Íslendingum til náms og rannsóknarstarfa í Þýskalandi á námsárinu 2009-2010:

a) Allt að fjórir styrkir til háskólanáms eða rannsóknarstarfa. Styrkirnir eru ætlaðir námsmönnum sem hafa lokið prófi sambærilegu við BA- eða BS-próf eftir 2002 eða kandídötum sem lokið hafa MA- eða MS-prófi eftir 2005. Styrkirnir eru ætlaðir til 10 - 24 mánaða námsdvalar. Einnig er boðið upp á styrki til 6 mánaða námsdvalar.
b) Allt að þrír styrkir til að sækja þýskunámskeið sumarið 2009. Umsækjendur skulu hafa lokið a.m.k. tveggja ára háskólanámi og leggja stund á nám í öðrum greinum en þýsku. Umsækjendur þurfa að hafa góða undirstöðukunnáttu í þýskri tungu.
c) Nokkrir styrkir til vísindamanna til námsdvalar og rannsóknarstarfa um allt að sex mánaða skeið og styrkir til fyrrverandi DAAD-styrkþega.
d) Styrkir fyrir nemendur í listgreinum.

Nánari upplýsingar fást í ráðuneytinu og á vef Deutscher Akademischer Austauschdienst (DAAD) http://www.daad.de/stipendien/de/index.de.html?
Einnig veitir Annika Grosse, lektor í þýsku í Háskóla Íslands (netfang: [email protected]) upplýsingar.
Eyðublöð fyrir umsóknir og fylgiskjöl með umsókn er hægt að nálgast á vef DAAD: http://www.daad.de/deutschland/download/03118.de.html

Umsóknir, ásamt staðfestum afritum prófskírteina og meðmælum, skulu sendar menntamálaráðuneyti, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík.

  • Umsóknarfrestur framlengdur til 27. október 2008

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum