Hoppa yfir valmynd
30. desember 2008 Matvælaráðuneytið

Tilkynning um tollkvóta vegna innflutnings á pottaplöntum

Mánudaginn 22. desember sl. rann út tilboðsfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á pottaplöntum til og með 1 m á hæð (0602.9091 og 0602.9093), fyrir tímabilið janúar – júní 2009. Tvö tilboð bárust og var annað þeirra ógilt.

Eitt gilt tilboð barst um innflutning á blómstrandi pottaplöntum, (0602.9091) samtals 2.000 stk. á meðalverðinu 125 kr./stk. Hæsta boð var 125 kr./stk. en lægsta boð var 125 kr./stk.

 

Eitt gilt tilboð barst um innflutning á öðrum pottaplöntum, (0602.9093) samtals 2.500 stk. á meðalverðinu 125 kr./stk. Hæsta boð var 125 kr./stk. en lægsta boð var 125 kr./stk.

 

Ekki kom til útboðs vegna innflutnings á tryggðablómum (0603.1400) og afskornum blómum (0603.1909), þar sem umsóknir bárust aðeins í hluta af þeim stykkjafjölda sem í boði var.

 

Tvær umsóknir bárust um innflutning á tryggðablómum, samtals 5.500 stk. og náðu umsóknir ekki tilteknum stykkjafjölda sem í boði var, samtals 9.000. Úthlutað var án útboðs.

 

Fjórar umsóknir bárust um innflutning á afskornum blómum, samtals 110.000 stk. og náðu umsóknir ekki tilteknum stykkjafjölda sem í boði var eða 166.250 stk. Úthlutað var án útboðs.

 

Að tillögu ráðgjafanefndar um inn- og útflutning landbúnaðarvara hefur sjávarútvegs- og  landbúnaðarráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða/umsókna þeirra:

 

Blómstrandi pottaplöntur janúar – júní 2009

 

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

    2.000

Húsasmiðjan/Blómaval

 

Aðrar pottaplöntur janúar – júní 2009

 

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

   2.500

Húsasmiðjan/Blómaval

 

Tryggðablóm janúar – júní 2009

 

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

2.500

Gróðurvörur ehf.

 3.000

Samasem ehf.

 

Afskorin blóm janúar – júní 2009

 

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

20.000

Gróðurvörur ehf.

30.000

Grænn Markaður ehf.

40.000

Samasem ehf.

20.000

Húsasmiðjan/Blómaval ehf.

 

Reykjavík, 30. desember 2008

 

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum